Manni bjargað úr sjónum við Húsavík Vésteinn Örn Pétursson skrifar 24. september 2018 22:19 Maðurinn var í sjónum norðan við Húsavík í um það bil tvær klukkustundir. Getty/Martin Ystenes
Laust fyrir klukkan átta í kvöld barst lögreglunni á Húsavík tilkynning um að maður hefði lent í sjónum um fimm kílómetra norður af bænum. Samkvæmt Facebook-færslu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra var ekki ljóst á þeirri stundu hvernig maðurinn hafði hafnað í sjónum, né hvernig hann komst jafn langt frá landi og raun var. Lögreglan hélt af stað til þess að bjarga manninum, en henni til liðsauka voru sjúkraliðar og björgunarsveitin Garðar. Manninum var komið um borð í björgunarbátinn Jón Kjartansson innan við hálfri klukkustund eftir að lögreglu barst útkallið. Þá hafði maðurinn verið um tvær klukkustundir í sjónum en það var félagi hans sem gerði lögreglu viðvart þegar honum þótti tíminn sem maðurinn hafði verið úti vera orðinn grunsamlega langur. Þegar manninum hafði verið bjargað kom í ljós að hann hafði verið við leik á fallhlífarbretti utan við Höfðagerðissand /Eyvíkurfjöru en fallið af brettinu með þeim afleiðingum að hann fór úr axlarlið og komst því ekki hjálparlaust til lands. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gekk björgunin vel og var maðurinn færður til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira