„Þokkalega hlýtt miðað við árstíma“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. september 2018 06:57 Það verður haustlegra um að lítast á landinu með hverjum deginum sem líður. fréttablaðið/anton brink
Það er útlit fyrir fremur hæga suðlæga átt og skúrir eða dálitla rigningu um land allt í dag en þó síst norðaustan til fyrri part dags. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar þar sem segir jafnframt að spár á morgun geri ráð fyrir að vindur verði norðlægur og bjart verði á Suður- og Vesturlandi. Það er hins vegar spáð skýjuðu veðri og rigningu af og til norðan og austan til. „Þokkalega hlýtt miðað við árstíma, að 15 stigum, hlýjast fyrir norðan í dag en syðra á morgun. Síðan er að sjá að við verðum í SA-lægari átt fram á helgi. Úrkoma liggur að mestu leyti skammt vestur af landinu en þó má búast að rigningin nái inn á land af og til um landið sunnan- og vestanvert. Áfram fremur milt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga eru annars þessar:Suðlæg átt, 3-10 m/s og dálítil rigning eða skúrir, þó síst á NA-landi fyrripartinn. Hiti 8 til 16 stig að deginum, hlýjast NA-til.Norðlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun, dálítil rigning N- og A-til, en annars bjart á köflum. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast syðst.Á miðvikudag:Hæg norðlæg eða breytileg átt og skýjað um morguninn, en léttir síðan til S- og V-lands. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast syðst.Á fimmtudag:Suðaustanátt, 8-15 m/s og rigning með köflum V-lands, hvassast á annesjum, en annars hægari og víða léttskýjað. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast á N-landi.Á föstudag og laugardag:Fremur hæg suðaustan- og austanátt og úrkomulítið, en áfram léttskýjað N-lands. Hiti víða 10 til 15 stig að deginum.Á sunnudag:Suðlæg átt og rigning, en lengst af þurrt NA-til. Áfram milt veður.
Veður Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Sjá meira