Henging dánarorsök Instagram-stjörnunnar Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 4. september 2018 21:14 Sinead McNamara, Instagram-stjarna, lést fyrir helgi á snekkju milljarðamærings. instagram
Krufning á líki áströlsku Instagram-stjörnunnar Sinead McNamara, hefur leitt í ljós að hún lést af völdum hengingar. Þetta segir Elias Boyiokas, dánardómstjóri, í samtali við CNN. Hann segir jafnframt að á líkinu hefði ekki mátt greina nein merki um átök en segir að á hálsi hennar hefðu verið för eftir reipi. Hann segir að það sé of snemmt að fullyrða um það hvort einhver hefði ýtt henni út í þetta með andlegu ofbeldi eða jafnvel hvort hún hafi verið undir áhrifum fíkniefna þar sem rannsóknin er á frumstigi. Hann bætir við að eiturefnarannsókn taki líklegast nokkrar vikur. Grísk lögregluyfirvöld fara með rannsókn málsins en McNamara, sem var tvítug, fannst alvarlega slösuð á snekkju mexíkóska milljarðamæringsins Alberto Bailleres fyrir helgi. Hún var síðan úrskurðuð látin þegar sjúkraliðar fluttu hana á spítala. Eigandi snekkjunnar Mayan Queen IV, Bailleres, hafði yfirgefið snekkjuna ásamt fjölskyldu sinni nokkrum dögum áður en McNamara lést. McNamara vann á snekkjunni sem var í höfn við grísku eyjuna Kefalonia. Hún var með yfir 12 þúsund fylgjendur á Instagram þegar hún lést en nú eru þeir tæplega þrjátíu þúsund talsins. Welcome to the jungle b*tch A post shared by Salt Bby (@sineadmcnamara) on Oct 2, 2017 at 10:23am PDT
Tengdar fréttir Áströlsk Instagram-stjarna lést á snekkju mexíkósks milljarðamærings Grísk lögregluyfirvöld rannsaka nú dauða Sinead McNamara, ástralskrar Instagram-stjörnu. 3. september 2018 07:00 Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Fleiri fréttir Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sjá meira
Áströlsk Instagram-stjarna lést á snekkju mexíkósks milljarðamærings Grísk lögregluyfirvöld rannsaka nú dauða Sinead McNamara, ástralskrar Instagram-stjörnu. 3. september 2018 07:00