Ótrúleg dramatík er Njarðvík vann á Ásvöllum Anton Ingi Leifsson skrifar 14. ágúst 2018 20:28 Njarðvíkingar fyrir leik í sumar. mynd/fésbókarsíða Njarðvíkur
Arnór Björnsson tryggði Njarðvík ævintýralegan sigur gegn Haukum á útivelli en með sigrinum fór Njarðvík upp fyrir Hauka í Inkasso-deildinni. Bæði lið voru fyrir leikinn í bullandi fallbaráttu en Njarðvíkingar komust yfir með marki frá Brynjari Frey Garðarssyni á 40. mínútu. Ekki skánaði það fyrir heimamenn í Haukum er Gunnar Gunnarsson fékk beint rautt á 70. mínútu frá dómara leiksins, Aðalbirni Heiðari Þorsteinssyni. Haukarnir náðu hins vegar að jafna metin á 87. mínútu en þar var að verki Aron Freyr Róbertsson. Flestir héldu þá að niðurstaðan yrði jafntefli en gestirnir voru ekki á sama máli. Arnór Björnsson, sem er uppalinn í Haukunum, gerði sér lítið fyrir og þrumaði boltanum í slá og inn, mínútu eftir mark Arons, og tryggði Njarðvík þar af leiðandi 2-1 sigur. Hrikalega mikilvægur sigur fyrir Njarðvík sem lyfti sér upp í sjöunda sætið með sextán stigum, fjórum stigum frá fallsæti. Haukarnir eru í tíunda sæti, tveimur stigum frá fallsæti. Úrslit og markaskorarar eru fengnir frá Fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Reese rífur í sig metin Körfubolti „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira