Mótmæla ónæði vegna veitinga í Ásmundarsal Garðar Örn Úlfarsson skrifar 17. júlí 2018 06:00 Aukin notkun gesta Ásmundarsals á garðinum og á svölum hússins eru meðal þess sem veldur nágrönnum áhyggjum. Vísir/Stefán „
Við teljum að með vínveitingaleyfi og opnunartíma sem hentar ekki fjölskylduhverfi, aðgengi út í garð og út á svalir fyrir reykingafólk og þess háttar geti skapast verulegt ónæði í framtíðinni,“ segir í einu margra mótmælabréfa vegna áforma um veitingarekstur í Ásmundarsal. Hjónin Aðalheiður Magnúsdóttir og Sigurbjörn Þorkelsson keyptu Ásmundarsal af Alþýðusambandi Íslands fyrir rúmum tveimur árum fyrir 168 milljónir króna. Húsið hefur fengið mikla andlitslyftingu og er enn ætlað undir listviðburði. Jafnframt hefur verið sótt um leyfi til að innrétta þar 55 manna kaffihús sem vera á með vínveitingar til klukkan eitt á nóttunni um helgar og til klukkan ellefu að kvöldi á virkum dögum. Málið var kynnt íbúum í átta nærliggjandi húsum á Freyjugötu og Eiríksgötu. Í fyrrnefndu bréfi sem vitnað er til segja hjónin Ingunn Ingimars og og Páll Borg sem búa á Freyjugötu 42 að þau telji veitingastað með þessum opnunartíma geta raskað ró íbúðahverfisins of mikið. Reiturinn milli Barónsstígs og Njarðargötu og hafi verið fjölskyldu- og íbúðahverfi í marga áratugi án þjónustustarfsemi.Aðalheiður Magnúsdóttir og Sigurbjörn ÞorkelssonAðsend„Við erum mjög hrifin af uppgerð hússins almennt séð og að enn verði menningarstarfsemi í húsinu eins og verið hefur um langt skeið,“ taka hjónin fram. Hins vegar hafi nú þegar hlotist ónæði af nýrri opnun út í garð austan megin við Ásmundarsal og notagildi svala hafa aukist með hækkun á svalahandriði. „Þess má geta að við höfum fengið þó nokkrum sinnum forsmekkinn af slíkum umgangi nýverið er listasafnið stóð fyrir gjörningum með hátalarakerfi úti í garði og uppi á svölum langt fram eftir kvöldi og þótti okkur og nágrönnum í nærliggjandi húsum alveg nóg um,“ skrifa Ingunn og Páll. Fleiri mótmælabréf nágranna lúta sömuleiðis að áhyggjum af ónæði vegna breytinganna, sem geti jafnvel verðfellt eignir þeirra er meðal annars bent á. „Þær uppákomur sem hafa verið frá opnun sýna að veruleg truflun er af. Vínveitingaleyfi gerði bara illt verra. Það er líka vafasamt að hafa atvinnustarfsemi í hverfinu þar sem ekkert er um bílastæði. Hér býr líka vaktafólk og má ekki við fleiri svefnlausum tímum af völdum skrílsláta,“ skrifar til dæmis Benedikt Hjartarson á Freyjugötu 42. Málið, ásamt mótmælabréfum nágrannana, var tekið fyrir á fundi hjá skipulagstjóra Reykjavíkur í síðustu viku. Þar var ákveðið að setja það til umsagnar hjá verkefnisstjóra hverfisins.
Birtist í Fréttablaðinu Skipulag Tengdar fréttir Búið að skrifa undir kaupsamning vegna Ásmundarsalar ASÍ og nýir eigendur Ásmundarsalar, hjónin Aðalheiður Magnúsdóttir og Sigurbjörn Þorkelsson, skrifuðu í dag undir kaupsamning vegna sölu hússins. 20. maí 2016 15:37 Mistök við sölu Ásmundarsalar algjört einsdæmi Hús listasafns ASÍ, Ásmundarsalur, var selt á lægra verði en hægt hefði verið að fá fyrir það en hærra tilboð barst aldrei til seljanda hússins vegna mistaka fasteignasala. Formaður Félags Fasteignasala segir málið mjög óvenjulegt, og veit ekki til þess að slík mistök hafi áður orðið. 18. maí 2016 19:15 Framkvæmdir hafnar við Ásmundarsal Viðhaldsvinna og uppbygging á Ásmundarsal við Freyjugötu 41 er hafin. Áætlað er að húsið verði formlega opnað vorið 2018. Það er arkitektastofan Kurtogpí sem mun hafa umsjón með endurbótum á húsinu. 25. mars 2017 07:00 Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira
Búið að skrifa undir kaupsamning vegna Ásmundarsalar ASÍ og nýir eigendur Ásmundarsalar, hjónin Aðalheiður Magnúsdóttir og Sigurbjörn Þorkelsson, skrifuðu í dag undir kaupsamning vegna sölu hússins. 20. maí 2016 15:37
Mistök við sölu Ásmundarsalar algjört einsdæmi Hús listasafns ASÍ, Ásmundarsalur, var selt á lægra verði en hægt hefði verið að fá fyrir það en hærra tilboð barst aldrei til seljanda hússins vegna mistaka fasteignasala. Formaður Félags Fasteignasala segir málið mjög óvenjulegt, og veit ekki til þess að slík mistök hafi áður orðið. 18. maí 2016 19:15
Framkvæmdir hafnar við Ásmundarsal Viðhaldsvinna og uppbygging á Ásmundarsal við Freyjugötu 41 er hafin. Áætlað er að húsið verði formlega opnað vorið 2018. Það er arkitektastofan Kurtogpí sem mun hafa umsjón með endurbótum á húsinu. 25. mars 2017 07:00