Útlit fyrir hæglætisveður eftir helgi Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 3. júní 2018 07:45 Fyrir austan verður víðast hvar bjart veður í dag og hámarkshiti um og yfir 20 stig. VÍSIR/EYÞÓR
Búast má við vestlægri átt í dag, yfirleitt golu eða kalda þegar kemur fram á daginn, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Það verður þungbúið áfram um vestanvert landið með lítils háttar súld af og til og hámarkshitinn um 10 stig. En þar sem sólin nær að brjótast fram, þá helst á S-landi, má reikna með hærri hámarkshita. Fyrir austan verður víðast hvar bjart veður í dag og hámarkshiti um og yfir 20 stig. Eftir helgi er útlit fyrir hæglætisveður, skýjað með köflum en sums staðar smásúld við ströndina. Er sérstaklega varað við snörpum hviðum við fjöll norðvestan til á landinu og austan við Tröllaskaga fram eftir morgni, þar sem hviður geta náð allt að 25 metrum á sekúndu.Veðurhorfur á landinu í dag Suðvestan 5-15 m/s, hvassast N- og A-til. Dregur smám saman úr vindi í dag. Skýjað og smásúld V-lands og hiti 8 til 12 stig, en víða bjart A-til og hiti víða 12 til 22 stig, hlýjast SA-lands. Hægari á morgun, víða bjart veður og heldur hlýnandi V-lands.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ mánudag:Hæg vestlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum eða bjartviðri og hiti 8 til 18 stig, svalast við ströndina.Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Hæg breytileg átt eða hafgola og skýjað með köflum. Hiti svipaður.Á föstudag: Útlit fyrir suðlæga átt og skýjað eða skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti breytist lítið.Á laugardag: Suðaustanlæg átt, dálítil rigning SV- og V-lands, en annars þurrt að kalla. Áfram milt í veðri.
Veður Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Sjá meira