Frjósemi kvenna á Íslandi aldrei minni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. maí 2018 10:44 Frjósemi á Íslandi hefur verið með því mesta sem þekkist í Evrópu á síðustu árum en árið 2016 var frjósemi undir tveimur í öllum löndum Evrópusambandsins. VÍSIR/GETTY
Frjósemi kvenna á Íslandi árið 2017 var minni en nokkru sinni fyrr. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en þar segir að frjósemi í fyrra hafi verið 1,71. Þá hélt meðalaldur frumbyrja áfram að hækka og var 27,8 ár. Ef horft er til Evrópu var algengast að barn fæðist utan hjónabands á Íslandi. Í fyrra fæddust 4.071 barn á Íslandi en það er fjölgun frá árinu 2016 þegar 4.034 börn fæddust. Alls fæddust 2.112 drengir og 1.959 stúlkur sem jafngildir 1.078 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum. „Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið. Árið 2017 var frjósemi íslenskra kvenna 1,71 börn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei farið lægra frá því að mælingar hófust árið 1853. Árið 2016 var frjósemi 1,75 en það er næst lægsta frjósemi sem mælst hefur hér á landi. Undanfarinn áratug hefur frjósemi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu. Frjósemi á Íslandi hefur verið með því mesta sem þekkist í Evrópu á síðustu árum en árið 2016 var frjósemi undir tveimur í öllum löndum Evrópusambandsins. Frjósemi var að meðaltali 1,6 í 28 löndum Evrópusambandsins árið 2016, mest var hún í Frakklandi (1,92). Síðustu ár hefur fæðingartíðni innan álfunnar verið lægst í löndum Suður-Evrópu og er árið 2016 engin undantekning, en fæðingartíðni var 1,34 á Spáni og Ítalíu og 1,36 í Portúgal,“ segir á vef Hagstofunnar en nánar má lesa um málið á vef Hagstofunnar.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira