FC Sækó og FC Kreisí mætast í hörkuleik Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 13. apríl 2018 20:00
FC Sækó og FC Kreisí mætast í „geðveikum fótboltaleik” í Egilshöllinni á morgun. FC Sækó er samstarfsverkefni Hlutverkaseturs, Velferðarsviðs Reykjavíkur og geðsviðs Landspítalans, en tilgangur þess er að efla og auka virkni fólks með geðraskanir og gefa þeim tækifæri til að iðka knattspyrnu og að draga úr fordómum. Liðið safnar nú fyrir ferð til Noregs í maí og hefur því verið efnt til fjáröflunarleiks á morgun þar sem liðið mætir úrvalsliði sem samanstendur af þjóðþekktum einstaklingum en lið FC Kreisí skipa meðal annars núverandi og fyrrverandi landsliðsmenn og konur, skemmtikraftar og stjórnmálafólk. Þau Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, Þorvaldur Þorvaldsson, oddviti Alþýðufylkingarinnar, Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins og Ilmur Kristjánsdóttir, varaborgarfulltrúi Bjartrar framtíðar og aðalmaður í velferðarráði, tóku forskot á sæluna fyrr í kvöld og hituðu upp fyrir leikinn á morgun. Allir eru velkomnir á leikinn sem hefst kl. 15:00 í Egilshöll þar sem tekið verður við frjálsum framlögum til styrktar verkefninu. Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta geta einnig lagt sitt af mörkum en allar nánari upplýsingar um verkefnið er að finna hér.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira