Ákærður fyrir tvær nauðganir með innan við árs millibili Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. mars 2018 13:33 Þinghald í málinu er lokað. Vísir/Hanna
Mál karlmanns sem sakaður er um gróf kynferðisbrot gegn tveimur konum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn er annars vegar sakaður um að hafa nauðgað konu á heimili hennar í júlí 2015 og haft við hana „önnur kynferðismök en samræði“ eins og segir í ákærunni. Þar kemur fram að konan hafi ítrekað sagt manninum að hún vildi ekkert með hann hafa, reyndi að ýta honum af sér, sparka í hann og bíta hann. Hins vegar er maðurinn sakaður um að hafa nauðgað annarri konu á heimili sínu í maí 2016. Segir í ákæru að hann hafi haft samræði við konuna gegn hennar vilja, beitt hana ítarlegu ofbeldi og beitt ólögmætri nauðung. „Meðal annars með því að slá hana og kýla ítrekað í andlit og líkama, taka hana kverkataki og hóta henni lífláti, halda henni fastri í rúmi og afklæða hana úr nærbuxum og sokkum og draga kjól hennar upp,“ segir í ákærunni. Hann hafi gert tilraun til að setja getnaðarlim í munn hennar og þröngva henni til samræðis í leggöng með því að þvinga fótleggi hennar í sundur og halda höndum hennar föstum fyrir ofan höfuð hennar. Lét hann ekki af háttseminni þrátt fyrir að konan lét hann vita að hún vildi þetta ekki, reyndi að öskra á hjálp og barðist um á meðan á þessu stóð. Báðar konurnar krefjast tveggja milljóna króna í miskabætur vegna brotsins.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira