Sjö ára barn í Njarðvík gaf Ragga Nat góð ráð fyrir kvöldið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2018 17:00 Ragnar Nathanaelsson. Vísr/Andri Marinó
Njarðvíkingar hafa tapað tveimur leikjum í röð í Domino´s deild karla í körfubolta og fengu á sig talsverða gagnrýni í síðasta Körfuboltakvöldi. Næsti leikur liðsins er á móti bikarmeisturum Tindastóls í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Miðherjinn Ragnar Águst Nathanaelsson fékk góð ráð fyrir kvöldið úr óvæntri átt. Raggi Nat eins og við þekkjum hann auglýsir leik kvöldsins á Twitter með því að vitna í ungan vin sinn frá Njarðvík eins og sjá má hér fyrir neðan.“Segðu Loga og Maciek að taka fleiri þrista og þú alltaf troða. Ekki fara í ley-up, þú klúðrarar alltaf!!” þessi sjö ára börn í Njarðvík kunna að peppa mann upp fyrir síðasta heimaleik í deildinni... PS. 19:15 allir í Ljónagryfjuna! — Ragnar Nathanaelsson (@RaggiNaT) March 5, 2018 Það væri nú ekki slæmt ef Logi Gunnarsson og Maciek Baginski færu að hitta betur úr þriggja stiga skotunum eða að Raggi fengi oftar boltann í úrvalsstöðu inn í teig til að troða með tilþrifum. „Þessi sjö ára börn í Njarðvík kunna að peppa mann upp fyrir síðasta heimaleik í deildinni,“ skrifaði Ragnar og nú er að sjá hvað kappinn gerir í leik kvöldsins. Ragnar Águst Nathanaelsson er með 7,8 stig og 8,0 fráköst að meðaltali í leik í Domino´s deildinni á þessu tímabili. Eftir tap á móti Haukum og Keflavík er ljóst að Njarðvíkingar þurfa að passa sig ætla þeir ekki að detta niður um fleiri sæti fyrir lok deildarkeppninnar. Liðið er nú í sjötta sæti en var í fimmta sæti fyrir 21. umferðina sem lýkur í kvöld. Njarðvík gæti dottið niður í sjöunda sætið eftir úrslitin í kvöld takist nágrönnum þeirra í Keflavík að ná þeim að stigum.
Dominos-deild karla Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjá meira