Réðst á konu eftir að hafa komist yfir símagögn fyrrverandi eiginmanns Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. febrúar 2018 11:52 Höfuðstöðvar Nova i Lágmúla. Vísir
Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu að fjarskiptafyrirtækið Nova hafi brotið persónuverndarlög þegar það afhenti fyrrverandi eiginkonu manns yfirlit yfir símanotkun hans í fyrra. Maðurinn kvartaði til Persónuverndar vegna þessa en eftir að hafa skoðað símayfirlit mannsins og komist að samskiptum hans við aðra konu þá hafði hún uppi á henni og réðst á hana með ofbeldi. Mun árásin vera á borði lögreglu. Nova segist hafa skerpt á starfsreglum sínum um afhendingu símagagna í kjölfarið. Úrskurður Persónuverndar var kveðinn upp á fundi stjórnarinnar þann 18. janúar síðastliðinn en birtur á vef Persónuverndar í dag. Kvörtun mannsins barst Persónuvernd þann 14. júní í fyrra og hefur hún verið til skoðunar síðan þar sem óskað hefur verið eftir umsögnum kvartanda og Nova.Sögðu konuna hafa beitt blekkingum Nova segir að fyrrverandi eiginkona mannsins hafi komið á skrifstofu Nova og framvísað greiðslukorti fyrirtækis sem skráð er á manninn. Hafi hún því beitt blekkingum þegar hún óskaði eftir yfirliti yfir símanotkunina. Maðurinn hafnaði þessum skýringum og sagði konuna aldrei hafa verið með greiðslukort fyrirtækisins í sinni vörslu. Háttsemi Nova yrði á engan hátt réttlætt og útskýringar breyttu engu um sök félagsins. Brot Nova hefðu leitt til þess „að sá einstaklingur, sem fékk upplýsingarnar afhentar, réðst á annan einstakling með ofbeldi“. Farið væri fram á að Nova yrði beitt viðeigandi viðurlögum. Var það niðurstaða Persónuverndar að miðlun Nova á persónuupplýsingum um manninn til fyrrverandi eiginkonu hans samrýmdust ekki lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Var Nova gert að senda Persónuvernd afrit af starfsreglum sínum um afhendingu símagagna, auk upplýsinga um hvernig fræðslu til starfsmanna um efni verklagsreglnanna væri háttað.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira