Ingi Kristján segir sárt að sitja undir ásökunum um nauðgun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. janúar 2018 15:15 Lögregla er með líkamsárásina til rannsóknar. Vísir/KTD
Ingi Kristján Sigurmarsson segir sárt að sitja undir ásökunum um að hafa nauðgað sambýliskonu sinni á árunum 2010-2011. Hafnar hann alfarið „þessum ósönnu fullyrðingum“ og minnir á að hann hafi aldrei verið kærður til lögreglu. Dýrfinna sagði frá nauðguninni í viðtali í Fréttatímanum árið 2015. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ingi Kristján sendi DV eftir viðtal við listakonuna Dýrfinnu Benítu, fyrrverandi sambýliskonu hans. Þar lýsti Dýrfinna líkamsárás sem hún og kærasti hennar, tónlistarmaðurinn Þórður Ingi Jónsson, urðu fyrir að morgni Þorláksmessu og lögregla hefur til rannsóknar. Dýrfinna greindi frá líkamsárásinni á Facebook og lýsir því að klukkan sex að morgni hafi hún verið við vinnu ásamt Þórði og tveimur mönnum til viðbótar þegar bankað var á dyrnar. Þrír menn hafi vaðið inn og veist að þeim. Tónlistarmaðurinn Þórður Ingi Jónsson, betur þekktur sem Lord Pusswip.Vísir/Eyþór Tönn hafi brotnað í Þórði Inga og honum flossblætt úr munninum. Hann fengið vænan heilahristing og mar og bólgur um andlit og höfuð. „Þetta hefði geta farið ver, því þetta eru hættulegir menn og þekktir fyrir það að beita gróft ofbeldi gagnvart fólki,“ segir Dýrfinna. Mennirnir hafi flúið af vettvangi áður en lögregla mætti. Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi staðfesti við DV að málið væri í rannsókn. Skýrsla hefði verið tekin af brotaþolum í málinu.Frásögn Dýrfinnu af árásinni má sjá hér að neðan. Dýrfinna segir árásina tilraun til þöggunar eftir frásögn hennar í #metoo byltingunni. Í pistli á Facebook í október sagði hún að Ingi Kristján væri einn fjögurra manna sem hefðu nauðgað sér á ævi hennar. Nauðgunin hefði átt sér stað þegar þau voru í sambandi. Dýrfinna lýsti Lýsti hún atvikum í þaula en frásögnina má sjá hér að neðan. Árásarmennirnir voru ekki ánægðir með frásögnina að sögn Dýrfinnu. Hún þekki þá vel enda séu þeir vinir og samstarfsmenn Inga Kristjáns. Ingi Kristján hefur verið í kastljósi fjölmiðlanna undanfarin ár vegna ærumeiðingarmáls sem Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger, höfðaði á hendur honum fyrir myndbirtingu á samfélagsmiðliðinum Instagram með textanum „Fuck you rapist bastard“ árið 2012. Myndin sem Ingi birti á Instagram-síðu sinni og varð til þess að Egill fór í einkamál við hann. Ingi fjarlægði myndina síðar meir og segir föður sinn og lögmann hafa sent lögmanni Egils afsökunarbeiðni. Krafðist Egill að orðin yrðu dæmd dauð og ómerk. Málið fór alla leið fyrir Hæstarétt þar sem Ingi Kristján var sýknaður. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu síðla árs 2017 að Hæstiréttur hefði ekki gætt jafnvægis á milli friðhelgi einkalífs Egils og tjáningarfrelsis Inga Kristjáns. „Það er sárt að sitja undir ásökunum af þessu tagi enda um að ræða hegningarlagabrot sem þungar refsingar fylgja og rétt að taka fram að engin kæra hefur verið lögð fram á mig og hafna ég alfarið þessum ósönnu fullyrðingum,“ segir Ingi Kristján í yfirlýsingu sinni.Dýrfinna sagði sögu sína fyrst í viðtali við Fréttatímann árið 2015. Egill Einarsson var kærður fyrir nauðgun árið 2011 en málinu var vísað frá. Egill neitaði ávallt sök.
Lögreglumál Tengdar fréttir Ingi Kristján: „Mjög sáttur með dóminn“ „Ég er fyrst og fremst ánægður að þetta mál sé nú lokins frá. Þetta hefur tekið langan tíma og gott að þessu sé lokið,“ segir Ingi Kristján Sigurmarsson. 1. nóvember 2013 14:45 Selur listaverk til að komast í jarðarför ömmu sinnar Dýrfinna Benita Garðarsdóttir hefur staðið fyrir söfnun á fésbókarsíðu sinni síðustu daga en markmiðið er að safna fyrir ferð svo að hún og fjölskyldan hennar geti verið viðstödd jarðarför ömmu hennar á Flippseyjum. 31. janúar 2014 17:03 Rök Hæstaréttar ófullnægjandi í meiðyrðamáli Gillzeneggers Íslenska ríkið var í gær dæmt fyrir að hafa brotið gegn friðhelgi einkalífs Egils Einarssonar með dómi Hæstaréttar í máli hans. 8. nóvember 2017 07:30 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Ingi Kristján: „Mjög sáttur með dóminn“ „Ég er fyrst og fremst ánægður að þetta mál sé nú lokins frá. Þetta hefur tekið langan tíma og gott að þessu sé lokið,“ segir Ingi Kristján Sigurmarsson. 1. nóvember 2013 14:45
Selur listaverk til að komast í jarðarför ömmu sinnar Dýrfinna Benita Garðarsdóttir hefur staðið fyrir söfnun á fésbókarsíðu sinni síðustu daga en markmiðið er að safna fyrir ferð svo að hún og fjölskyldan hennar geti verið viðstödd jarðarför ömmu hennar á Flippseyjum. 31. janúar 2014 17:03
Rök Hæstaréttar ófullnægjandi í meiðyrðamáli Gillzeneggers Íslenska ríkið var í gær dæmt fyrir að hafa brotið gegn friðhelgi einkalífs Egils Einarssonar með dómi Hæstaréttar í máli hans. 8. nóvember 2017 07:30