Sá sem réðst á fullorðna fólkið verður í varðhaldi út mánuðinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. janúar 2018 10:45 Eitt af sambýlum eldri borgara við Sléttuveg þar sem árásin varð á Nýársdag. Já.is
Karlmaður um tvítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 31. janúar á grundvelli almannahagsmuna eftir að hafa ráðist á konu á níræðisaldri og nágranna hennar í íbúðarkjarna fyrir eldri borgara við Sléttuveg á Nýársdag. Tilkynning barst til lögreglu um klukkan 18 en eldri borgararnir sem urðu fyrir árásinni voru fluttir á slysadeild. Réðst maðurinn fyrst inn í íbúð konunnar og reyndi nágranni hennar að koma henni til aðstoðar. Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi á höfuðborgarsvæðinu, segir manninn hafa verið í annarlegu ástandi. Hann sé um tvítugt og eigi að baki smá feril hjá lögreglu. Ekki hafi annað komið til greina en að úrskurða hann í gæsluvarðhald. „Það er ekki hægt að láta menn komast upp með svona,“ segir Guðmundur Páll. Flest bendi til þess að maðurinn hafi komist inn í sameignina áður en hann gekk inn í íbúð í kjarnanum. Gestir sem voru að heimsækja foreldra sína komu fullorðna fólkinu til aðstoðar og héldu ofbeldismanninum þar til lögreglu bar að garði. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og verður sömuleiðis rætt við fullorðna fólkið og vitni næstu daga. Í framhaldinu verður málið sent í ákæruferli.Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is Fullum trúnaði heitið.
Lögreglumál Tengdar fréttir Réðst á eldri konu og nágranna hennar Ungur maður, sem lögregla segir hafa verið í mjög annarlegu ástandi, réðst í gærkvöldi á eldri konu á heimli hennar við Sléttuveg. 2. janúar 2018 07:20 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Réðst á eldri konu og nágranna hennar Ungur maður, sem lögregla segir hafa verið í mjög annarlegu ástandi, réðst í gærkvöldi á eldri konu á heimli hennar við Sléttuveg. 2. janúar 2018 07:20