Dýrkeyptur sigur arnanna 11. desember 2017 10:00 Wentz gengur hér niðurlútur af velli. Vísir/Getty
Stuðningsmenn Phildelphia Eagles upplifðu súrsætan sigur á LA Rams í toppslag í Þjóðardeild NFL-deildarinnar í nótt, 43-35, í mögnuðum leik í Los Angeles í gærkvöldi. Með sigrinum náðu ernirnir að tryggja sér sigur í austurriðli Þjóðardeildarinnar og um leið efsta sæti deildarinnar sjálfrar, þar sem að Minnesota Vikings tapaði fyrr um daginn fyrir Carolina Panthers, 31-24. En sigrinum var mjög dýru verði keyptur þar sem að Carson Wentz, leikstjórnandi Eagles, fór meiddur af velli í síðari hálfleik og sneri ekki til baka. Talið er líklegt að hann hafi slitið krossband í vinstra hné. Wentz meiddist þegar hann lenti á milli tveggja varnarmanna sem tækluðu hann þegar hann stökk með boltann í endamark Rams. Snertimarkið reyndist þó ekki gilt vegna brots sóknarlínumanns Eagles. Wentz, þrátt fyrir hnémeiðslin, kláraði þó sóknina með snertimarkssendingu á Alshon Jeffery. Þetta var fjórða snertimark Wentz í leiknum og 33. á tímabilinu - nýtt félagsmet. En snertimörkin verða líklega ekki fleiri á tímabilinu og þrátt fyrir sterka stöðu Eagles í Þjóðardeildinni minnkuðu vonir liðsins um að vinna fyrsta Super Bowl-titil félagsins í sögunni umtalsvert. Nick Foles leysti Wentz af hólmi og spilaði nógu vel til að Eagles næði að klára leikinn með sigri, en það var ekki síst vörn liðsins að þakka sem hélt Jared Goff og sóknarliði Rams í skefjum í fjórða leikhluta. Sigurinn var svo tryggður með tveimur vallarmörkum Jake Elliott. Þetta eru ekki fyrstu alvarlegu meiðsli Eagles á tímabilinu en liðið missti Jason Peters, einn besta sóknarlínumann deildarinnar, hlauparann Darren Sproles og varnarmanninn Jordan Hicks fyrr á tímabilinu.Verður Antonio Brown valinn besti leikmaður NFL-deildarinnar þetta tímabilið?Vísir/GettyMagnaður Brown Eagles var þó ekki eina liðið sem tryggði sér sigur í sínum riðli í nótt en það gerði einnig Pittsburgh Steelers með mögnuðum sigri á Baltimore Ravens, 39-38, á heimavelli í nótt. Chris Boswell, sparkari Steelers, tryggði liðinu sigurinn með vallarmarki þegar 42 sekúndur voru til leiksloka. Steelers náði þar með að koma til baka eftir að hafa lent 31-20 undir. Útherjinn Antonio Brown átti enn einn stórleikinn fyrir Steelers en hann var með alls 213 jarda í leiknum. Steelers tryggði sér þar með sigur í norðurriðli Ameríkudeildarinnar en um næstu helgi mætir liðið New England Patriots í uppgjöri tveggja bestu liða Ameríkudeildarinnar. Steelers og Eagles eru einu liðin sem hafa tryggt sér sæti nú þegar í úrslitakeppninni. Jacksonville Jaguars er nokkuð óvænt með þriðja besta árangur allra liða í Ameríkudeildinni eftir öflugan sigur á Seattle Seahawks í gær, 30-24. Umferðinni lýkur í nótt með viðureign Miami Dolphins og New England Patriots.Hér má sjá stöðuna í deildunum tveimur og úrslit leikja gærdagsins hér fyrir neðan: Buffalo - Indianapolis 13-7 NY Giants - Dallas 10-30 Tampa Bay - Detroit 21-24 Kansas City - Oakland 26-15 Houston - San Francisco 16-26 Cleveland - Green Bay 21-27 Cincinnati - Chicago 7-33 Carolina - Minnesota 31-24 LA Chargers - Washington 30-13 Denver - NY Jets 23-0 Arizona - Tennessee 12-7 LA Rams - Philadelphia 35-43 Jacksonville - Seattle 30-24 Pittsburgh - Baltimore 39-38
NFL Tengdar fréttir Fögnuðu snertimörkum með snjóenglum Á meðan draumar einhverra um hvít jól hér á landi gætu verið að dvína er nóg af snjó að taka víðs vegar um heiminn. Í gær fór fram leikur Buffalo Bills og Indiana Colts í bandarísku NFL deildinni á meðan snjónum kyngdi niður allt í kring. 11. desember 2017 09:30 Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Reese rífur í sig metin Körfubolti „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Haukar fá risavaxinn liðsauka Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Dagskráin í dag: Barist um sæti í Meistaradeild Evrópu Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City Sjá meira
Fögnuðu snertimörkum með snjóenglum Á meðan draumar einhverra um hvít jól hér á landi gætu verið að dvína er nóg af snjó að taka víðs vegar um heiminn. Í gær fór fram leikur Buffalo Bills og Indiana Colts í bandarísku NFL deildinni á meðan snjónum kyngdi niður allt í kring. 11. desember 2017 09:30