Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa nauðgað enn einni dóttur sinni Kolbeinn Tumi Daðason og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 1. desember 2017 14:04 Maðurinn verður að óbreyttu í gæsluvarðhaldi til 27. desember. vísir/anton brink
Faðir á Suðurland sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega gegn tveimur dætrum sínum verður áfram í gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikurnar á grundvelli almannahagsmuna, samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Suðurlands sem kveðinn var upp á miðvikudag. Maðurinn verður því í gæsluvarðhaldi til 27. desember næstkomandi en verjandi hans áfrýjaði úrskurðinum til Hæstaréttar sem enn á eftir að kveða upp sinn dóm samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi. Hæstiréttur staðfesti fyrir úrskurð héraðsdóms um þriggja vikna gæsluvarðhald fyrir tæpum fjórum vikum. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar meint brot mannsins gegn yngstu dóttur hans. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu miðar rannsókn vel en hún er nokkuð umfangsmikil. Fyrirhugað er að reyna að klára þátt lögreglu í málinu í næstu viku og senda það þá til héraðssaksóknara.Sjá einnig:Íslenskir bræður sem misnota dætur sínar og ofbeldisfull stjúpa Félagsmálastjóri tilkynnti um meint brot föðurins Í dómi Hæstaréttar í nóvember var úrskurður héraðsdóms rakinn. Þar kom fram að það hefði verið félagsmálastjóri í sveitarfélaginu þar sem fólkið býr sem tilkynnti meint brot föðurins gagnvart yngstu dóttur sinni til lögreglu þann 2. október. Mun stúlkan hafa greint frá því í skýrslutöku hjá lögreglu að faðirinn hafi í það minnsta þrisvar sinnum haft samfarir við hana þegar hún var á aldrinum fimm til sex ára. Þá bjó fjölskyldan erlendis. Í öll skiptin hafi þau feðginin verið ein á ferðalagi og gist á hóteli þar sem brotin voru framin. Faðirinn hafi ítrekað beðið hana um að greina móður þeirra ekki frá því sem gerðist. Stúlkan er nú nokkrum árum eldri og sagði fyrst frá brotunum nýverið í samtölum við vinkonur sínar. Þá hafi systirin sagt að eldri systir sín hafi greint frá samskonar brotum gagnvart sér í samskonar ferðum. Það mál er á borði héraðssaksóknara. Faðirinn var handtekinn þann 31. október en hann neitar sök. Hann hefur staðfest að hafa farið tvisvar eða þrisvar með yngstu dótturina í umræddar ferðir þar sem gist hafi verið á hóteli. Lýsingar hans á hótelherberginu eru áþekkar lýsingar dótturinnar.Trúverðugur framburður dóttur Að mati lögreglu er framburður stúlkunnar afar trúverðugur. Ekkert hafi komið fram sem gefi tilefni til að draga frásögn hennar í efa. Framburður föðurins styðji í öllum tilfellum framburð dótturinnar þótt hann neiti sök. Enn á eftir að taka skýrslur af nokkrum aðilum, meðal annars vinum og félögum dótturinnar. Þá hafi dóttirin farið í viðtalsmeðferð í barnahúsi og afla þurfi greinargerðar þaðan, að því er segir í kröfu lögreglustjórans um gæsluvarðhald. Í kröfunni kemur einnig fram að faðirinn hafi verið til rannsóknar hjá héraðssaksóknara vegna meints kynferðisbrots gegn næstelstu dótturinni. Hennar frásögn er áþekk þeirrar yngstu, faðirinn hafi brotið á henni á heimili þeirra erlendis þegar hún var fimm til sex ára. Hafi verið um að ræða samfarir, segir í greinargerð lögreglustjórans en faðirinn hafi látið af brotum sínum þegar fjölskyldan flutti aftur til Íslands árið 2012. Faðirinn hafi beðið dóttur sína að segja engum frá og lofað að gera þetta aldrei aftur. Faðirinn neitar sök í málinu.Játaði brot gegn elstu dóttur árið 1991 Faðirinn hlaut tíu mánaða fangelsisdóm árið 1991 fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn elstu dóttur sinni þegar hún var 5-7 ára gömul. Hann játaði alfarið sök fyrir dómi. Héraðsdómur féllst á það með lögreglustjóranum á Suðurlandi að maðurinn þurfi að sæta gæsluvarðhaldi enda sé hann talinn hættulegur umhverfi sínu. Þá stríði það gegn réttarvitund almennings að hann gangi laus á meðan málin séu til rannsóknar.
Tengdar fréttir Íslenskir bræður sem misnota dætur sínar og ofbeldisfull stjúpa Dæmdur kynferðisbrotamaður er grunaður um að hafa nauðgað dætrum sínum. Hann situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins. 17. nóvember 2017 09:00 Faðir á Suðurlandi grunaður um að hafa nauðgað enn einni dóttur sinni Hlaut dóm fyrir að brjóta á elstu dóttur sinni árið 1991. Grunaður um að hafa nauðgað tveimur yngri dætrum sínum þegar þær voru um sex ára gamlar. 9. nóvember 2017 10:27 Börn föðurins sem grunaður er um að nauðga dætrum sínum komin í öruggt skjól Faðirinn á þriggja og níu ára börn til viðbótar við dætur sínar þrjár sem allar segja hann hafa brotið gegn sér. 10. nóvember 2017 16:29 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira
Íslenskir bræður sem misnota dætur sínar og ofbeldisfull stjúpa Dæmdur kynferðisbrotamaður er grunaður um að hafa nauðgað dætrum sínum. Hann situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins. 17. nóvember 2017 09:00
Faðir á Suðurlandi grunaður um að hafa nauðgað enn einni dóttur sinni Hlaut dóm fyrir að brjóta á elstu dóttur sinni árið 1991. Grunaður um að hafa nauðgað tveimur yngri dætrum sínum þegar þær voru um sex ára gamlar. 9. nóvember 2017 10:27
Börn föðurins sem grunaður er um að nauðga dætrum sínum komin í öruggt skjól Faðirinn á þriggja og níu ára börn til viðbótar við dætur sínar þrjár sem allar segja hann hafa brotið gegn sér. 10. nóvember 2017 16:29