Ráðherra segir umgengni um fiskveiðiauðlindina ólíðandi en framkvæmdastjóri SFS segir áhyggjur óþarfar Birgir Olgeirsson skrifar 22. nóvember 2017 10:33 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ráðherra og Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS Vísir
Sjávarútvegsráðherra lítur brottkast útgerða alvarlegum augum á meðan framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja sjávarútvegs segir áhyggjurnar að mestu óþarfar.Fjallað var um brottkast í íslenskum sjávarútvegi í fréttaskýringaþættinum Kveik í Sjónvarpinu í gærkvöldi. Þar var vísað í rannsókn Hafrannsóknastofnunar frá árinu 2015 þar sem brottkast þorsks og ýsu var sagt hafa numið 3.200 tonnum árið 2015 og ekki mælst meira í nærri áratug. Birt var myndefni úr frystitogaranum Kleifarbergi sem sýndi áhöfnina henda fisk fyrir borð og því haldið fram að brottkast eigi sér stað með einhverju móti í hverjum túr.Frá Reykjavíkurhöfn.vísir/vilhelmSagði stofnunina vanmáttuga Eyþór Björnsson, forstjóri Fiskistofu, sagði við Kveik að stofnunin gæti ekki staðið undir nægjanlegu eftirliti á brottkasti, framhjálöndun og öðrum undanskotum. Fjallað var um endurvigtun á afla í Kveik og því haldið fram að mikill misbrestur sé þar á. Allur afli skal vigtaður á löggiltri hafnarvog af starfsmanni sem hefur hlotið til þess löggildingu. Þannig sé hægt að vita hversu mikið hefur verið veitt af þeim afla sem Hafrannsóknastofnun kveður á um að megi veiða á hverju ári. Aflanum sé síðan keyrt inn í fiskvinnslur sem hafi margar hverjar leyfi til endurvigtunar. Í þættinum kom fram að 120 slík leyfi séu fyrir hendi hér á landi og að sú vigtun sé lokatalan sem sé miðað við. Þegar aflinn er vigtaður á hafnarvog er ísinn sem er notaður til að kæla hann vigtaður með. Endurvigtunin er gerð til að vigta aflann án íssins. Þannig sé hægt að halda því fram að hlutfall íss af lönduðum afla hafi verið allt að tuttugu prósent og fisknum þannig landað fram hjá vigt með því að skrá hann sem ís. Í Kveik kom fram að þegar Fiskistofa hefur eftirlit með endurvigtun sé hlutfall íss jafnan lægra en þegar endurvigtun fer fram án eftirlits. Fréttamenn Kveiks ræddu við Þórhall Ottesen, sem starfaði sem eftirlitsmaður og síðar deildarstjóri landeftirlits Fiskistofu í ríflega 20 ár, sem sagði að þegar eftirlitsmenn fylgjast með endurvigtun hafi ísprósentan verið um fimm prósent á meðan tölur yfir eftirlitslausa endurvigtun bentu til þess að íshlutfallið væri frá 12 og upp í 17 prósent.Endurvigtun fiskvinnsla var gagnrýnd í þættinum í gær.VísirBreyta þurfi lögumÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði þessa umgengni um auðlinda ólíðandi í viðtali við fréttastofu RÚV í gærkvöldi. Hún sagði Fiskistofu gera sitt besta og að aðallega væri við útgerðirnar að sakast. Breyta þurfi lögum til að herða eftirlit og auka heimildir Fiskistofu. Hún boðaði jafnframt til fundar í ráðuneytinu þar sem rætt verður hvernig og hvort bregðast eigi við þessu.Áhyggjur að mestu óþarfarHeiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sagði í yfirlýsingu á vef samtakanna í gærkvöldi að áhyggjur einstakra aðila sem settar voru fram í þættinum séu að mestu óþarfar. Sagði hún miður að í þættinum hafi ekki verið leitað viðbragða þeirra sem nýta auðlindina. Hún sagði brottkast hafa tíðkast fyrir þrjátíu árum og þótt þá ekkert tiltökumál. Sagði hún jákvæða þróun hafa orðið á frá þeim tíma og að upptaka kvótakerfis hafi verið mikið gæfuspor í því tilliti. Hún sagði skýrslu Hafrannsóknastofnunar sýna að árlegt brottkast á þorski sé um eitt prósent og tvö til þrjú prósent á ýsu og að fullur vilji standi til að útrýma algjörlega brottkasti. Tekist hafi vel til við að viðhalda þorskstofninum þar sem viðmiðun Hafrannsóknastofnunar hafi aukist úr 688 þúsund tonnum árið 2007 í 1.241 þúsund tonn árið 2016.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira