Skipar nefndir til að meta umfang áreitni, ofbeldis og eineltis Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. nóvember 2017 16:35 Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra. Vísir/Ernir
Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur ákveðið að skipa nefnd til að meta umfang kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni eða ofbeldis, auk eineltis á vinnumarkaði. Nefndin er skipuð til að bregðast við brýnni þörf fyrir aðgerðir sem umfjöllun um þessi mál í samfélaginu að undanförnu hefur leitt í ljós. Svo segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. „Í fjölmiðlum undanfarið hefur átt sér stað umræða í samfélaginu þar sem fjöldi fólks, fyrst og fremst konur, hefur greint frá þeirri reynslu að hafa sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi á vinnustað. Auk þess að meta umfang vandans er nefndinni ætlað að skoða aðgerðir og viðbrögð atvinnurekenda til að koma í veg fyrir athæfi sem þetta á vinnustöðum og hvernig tekið er á málum sem þessum ef upp um þau kemst eða grunur er um slík brot eigi sér stað,“ segir í tilkynningunni. Gert er ráð fyrir að nefndin standi fyrir þríþættri rannsókn þar sem könnuð verði reynsla starfsmanna af kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni eða ofbeldi á vinnustöðum auk eineltis, ýmist sem þolendur, vitni eða gerendur. „Jafnframt verði kannað meðal vinnuveitenda hvernig þeir hafa brugðist við framangreindum aðstæðum á vinnustöðum, þar á meðal til hvaða aðgerða hafi verið gripið. Þá verði kannað meðal vinnuveitenda hvort þeir hafi gert skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum sínum, þ.m.t. áætlun um forvarnir þar sem meðal annars komi fram til hvaða aðgerða skuli gripið til að koma í veg fyrir framangreindar aðstæður á vinnustöðum þeirra og til hvaða aðgerða skuli gripið ef komi fram kvörtun, ábending eða rökstuddur grunur um aðstæður eða brot af þessum toga.“ Í starfshópinn verði skipaðir fulltrúar frá samtökum launafólks og atvinnurekenda, Jafnréttisstofu, Vinnueftirliti ríkisins, fjármála- og efnaghagsráðuneytinu og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Félags- og jafnréttismálaráðherra mun skipa formann nefndarinnar að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira