Hættulegar holur á Holtinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. nóvember 2017 11:30 Manirnar eru neðst í Holtunum, rétt við Reykjanesbraut, þar sem koma á upp hljóðmön. Vísir/Anton Brink
Íbúar á Holtinu í Hafnarfirði eru hreint ekki sáttir með frágang vegna vinnu við gerð hljóðmanar við Byggðabraut. Þar hafa áltunnur verið steyptar í jörðina og standa steypustyrktarjárn upp úr þeim með tilheyrandi slysahættu. Verkið er á vegum Vegagerðarinnar en þegar fréttastofa leitaði upplýsinga um málið í gær kannaðist upplýsingafulltrúi ekki við áhyggjur íbúa á Holtinu.Vísir/Anton Brink„Stórhættulegt bara! Hvolpurinn minn var aðeins utan við sig og steig þarna ofan í með einn fót. Hlaut ekki skaða en mér brá mikið þegar ég sá hvað var þarna ofan í,“ sagði Kolbrún Arna Sigurðardóttir, íbúi í Holtinu, sem vakti athygli nágranna sinna á málinu í Facebook-hópnum Holtið mitt í gær. Henni taldist til að holurnar væru um fimmtán samanlagt.Hafnarfjarðarbær svaraði ósáttum íbúum í Facebook-grúppunni í gærkvöldi og benti á að Vegagerðin bæri ábyrgð á holunum. Vonir stæðu til að málið yrði lagað hið snarasta, líklega strax í dag. Ekki voru þó allir íbúar í Holtinu sáttir við svör bæjarins á Facebook og létu bæjaryfirvöld heyra það. Hafnarfjarðarbær sagðist sár vegna gagnrýni sem bærinn fékk í einu innleggi í hópnum. „Voruð þið „sár“? Þið Hafnarfjarðarbær? Mér finnst ósmekklegt að rita svona nokkuð í nafnleysi enda augljóst mál að þið Hafnarfjarðarbær yrðuð sárari ef úr þessu yrði slys. Þetta er meira en tilefni til að láta vita og vona svo eitthvað. Þetta er tilefni til að krefjast lagfæringar strax,“ sagði einn íbúi íbúi í hópnum og tóku fleiri undir skoðun hans.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Sjá meira