Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa stungið annan mann í höfuðið Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 7. nóvember 2017 18:29 Hæstiréttur framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa stungið annan mann í höfuðið. Vísir/GVA
Hæstiréttur framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa stungið annan mann í höfuðið vegna deilna um bíl. Maðurinn var handtekinn aðfaranótt 5. mars á þessu ári og hefur síðan setið í gæsluvarðhaldi. Málið verður tekið fyrir í Hæstaréti þann 27. nóvember næstkomandi. Í úrskurði hæstaréttar kemur fram að maðurinn mun sitja í gæsluvarðhaldi þangað til málið hefur verið tekið fyrir, þó ekki lengur en til mánudagsins 20. desember kl.16. Maðurinn er grunaður um að hafa aðfaranótt 5. mars síðastliðinn stundið annnan mann en í í greinagerð lögreglu kom fram að málið væri rannsakað sem alvarleg líkamsárás eða tilraun til manndráps. Hinn ákærði á að hafa fengið lánaðan bíl hjá vinkonu sinni tveimur dögum áður en neitað að skilja henni til baka. Þau mældu sér mót um miðnætti þann 5. mars en hún hafi ekki þorað að hitta manninn ein og því hafi annar vinur hennar boðist til að fara með henni. Þegar maðurinn var krafinn um lyklana að bílnum hafi komið til átaka milli mannanna tveggja og sá ákærði tekið upp hníf og stungið brotaþola í höfuðið. Í framhaldi tók blóð að spýtast úr höfðinu á brotaþola, sem kom sér í burtu og hringdi í vinkonu sína og hún farið með hann á slysadeild. Við komu á slysadeild komi í ljós að maðurinn var með alvarlega stunguáverka og slagæðarblæðingu úr höfuðleðri. „Hafi það verið mat vakthafandi læknis á heila og taugadeild LSH að ef eggvopnið hefði gengið inn í heilavefinn hefði ekki verið að sökum að spyrja og áverkinn hafi getað leitt til mikils varanlegs tjóns og jafnvel dauða,“ segir í úrskurðinum. Hinn ákærði hefur neitað sök í málinu.
Tengdar fréttir Stakk mann í höfuðið vegna deilna um bíl Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er að hafa stungið annan mann í höfuðið aðfararnótt 5. mars. 11. apríl 2017 13:13 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira
Stakk mann í höfuðið vegna deilna um bíl Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er að hafa stungið annan mann í höfuðið aðfararnótt 5. mars. 11. apríl 2017 13:13