Lögreglan ók utan í bifreið til að stöðva eftirför í Reykjavík Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 22. október 2017 07:15 Ökumaður stakk af frá vettvangi eftir umferðaróhapp við Miklubraut og Lönguhlíð í nótt. Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lenti í eftirför við ökumann undir áhrifum fíkniefna í nótt. Ökumaðurinn neitaði að stoppa þegar lögregla hafði afskipti af honum við Arnarbakka. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu jók hann svo hraðann til þess að koma sér undan. Þetta varð til þess að lögregla ók utan í bifreið hans við bakkabraut og lauk eftirförinni þar. Ökumaðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa en eins og áður sagði var hann undir áhrifum fíkniefna. Ökumaður var stöðvaður í akstri á Vesturlandsvegi á 130 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 80 km/klst. Ökumaðurinn reyndist einnig vera ölvaður. Annar ökumaður var sem var stöðvaður reyndist aka undir áhrifum fíkniefna og var sviptur ökuréttindum. Ölvaður maður datt á höfuðið við Ölhúsið og var færður á sjúkrahús til aðhlynningar. Óskað var eftir lögreglu að Félagsheimili Fáks en þar hafði ölvaður einstaklingur brotið rúðu. Viðkomandi var handtekinn og vistaður. Óskað var eftir aðstoð í miðborginni um klukkan þrjú í nótt þar sem ráðist hafði verið á öryggisvörð frá Securitas. Málið er í rannsókn samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ökumaður stakk af frá vettvangi eftir umferðaróhapp við Miklubraut og Lönguhlíð í nótt. Ökumaðurinn kom þó nokkru síðar akandi aftur á vettvang. Þrír erlendir aðilar voru handteknir vegna málsins og vistaðir í fangageymslum.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira