Sakaðir um að hafa drepið 29 borgara á sólarhring Samúel Karl Ólason skrifar 8. ágúst 2017 22:23 Leyniskytta SDF horfir yfir Raqqa. Vísir/AFP
Bandalag Bandaríkjanna gegn Íslamska ríkinu er sakað um að hafa drepið 29 almenna borgara í árásum á Raqqa í Sýrlandi. Árásirnar eru sagðar hafa verið gerðar á einum sólarhring og að fjórtán meðlimir einnar fjölskyldu hafi látið lífið. Samtökin Syrian Observatory for Human Rights segja töluna geta hækkað frekar þar sem einhverjir séu alvarlega særðir. Bandaríkin styðja við bakið á samtökum sýrlenskra Kúrda og araba sem herja nú á Raqqa, síðustu borgina sem enn er í haldi ISIS. Samtökin sem kallast Syrian Democratic Forces stjórna nú tæpum helmingi Raqqa, en mótspyrna ISIS-liða er sögð vera gífurlega hörð. Helstu vopn ISIS-liða eru sjálfsmorðssprengjur, bílsprengjur, leyniskyttur og drónar sem sérstaklega eru útbúnir til að bera sprengjur. Þá beita vígamenn gildrum víða um borgina. Frá því að aðgerðir Bandaríkjanna gegn ISIS hófust þann 8. ágúst 2014, í Írak, hafa hernaðaryfirvöld viðurkennt að hafa drepið 624 almenna borgara. Mannréttindasamtök segja töluna vera mun hærri í rauninni, samkvæmt frétt AFP fréttaveitunnar.Útsendarar Sameinuðu þjóðanna sem rannsaka stríðsglæpi lýstu í júní yfir áhyggjum vegna hækkandi mannfalls meðal borgara í Raqqa.
Mið-Austurlönd Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Sjá meira