Sólstrandarríkisstjórinn bindur enda á lokanir hins opinbera Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. júlí 2017 07:46 Chris Christie, ríkisstjóri New Jersey, segir samþykktina ótengda myndum sem teknar voru af honum um helgina. Vísir/Getty
Chris Christie, ríkisstjórinn sem gripinn var glóðvolgur í sólbaði á strönd sem hann lokaði sjálfur fyrir almenningi, hefur skrifað undir samning þess efnis að skrifstofur, þjóðgarðar og strandir hins opinbera í New Jersey í Bandaríkjunum snúi aftur til starfa. Starfsemi skrifstofanna hafði legið niðri í þrjá daga þegar Christie samþykkti nýja fjárhagsáætlun fyrir heimafylki sitt, New Jersey. Öll opinber starfsemi ríkisins er því hafin á ný en Christie vann að samþykktinni ásamt löggjafarþingi Demókrata í New Jersey. Christie hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir framferði sitt nú um helgina. Teknar voru myndir af honum þar sem hann varði fríi sínu ásamt fjölskyldunni í Island Beach State Park í New Jersey. Þjóðgarðurinn var einn þeirra sem lokaður var fyrir almenningi, að fyrirskipan Christie, en hann þvertók fyrir að hafa notið sólarinnar á blaðamannafundi þar sem hann sat fyrir svörum vegna lokana á skrifstofum hins opinbera. Þegar myndirnar leiddu annað í ljós sagði talsmaður hans að Christie hefði vissulega ekki látið sólina skína á sig, hann hefði verið með derhúfu. Christie segist alltaf hafa gert ráð fyrir því að opnanirnar tækju gildi í tæka tíð fyrir þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna, sem haldinn er hátíðlegur í dag, og að samningurinn sé ótengdur atvikinu um helgina.Chris Christie is so unpopular in New Jersey that he doesn't even care that he closed the beaches to the public and is using them himself. pic.twitter.com/bbwGl9S9iG— Josh Jordan (@NumbersMuncher) July 2, 2017
Tengdar fréttir Ríkisstjóri New Jersey varði fríinu á strönd sem hann lét loka fyrir almenningi Chris Christie, sem er ríkisstjóri fyrir Repúblikanaflokkinn, er gríðarlega óvinsæll í heimafylki sínu. Hann gisti ásamt fjölskyldu sinni í húsnæði sem ríkisstjórar hafa til afnota í garði sem er nú lokaður almenningi. 3. júlí 2017 08:39 Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira
Ríkisstjóri New Jersey varði fríinu á strönd sem hann lét loka fyrir almenningi Chris Christie, sem er ríkisstjóri fyrir Repúblikanaflokkinn, er gríðarlega óvinsæll í heimafylki sínu. Hann gisti ásamt fjölskyldu sinni í húsnæði sem ríkisstjórar hafa til afnota í garði sem er nú lokaður almenningi. 3. júlí 2017 08:39