Ríkisstjóri New Jersey varði fríinu á strönd sem hann lét loka fyrir almenningi Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. júlí 2017 08:39 Chris Christie þvertók fyrir að hafa sleikt sólina í gær vegna þess að hann hafði derhúfu á höfðinu. Vísir/Getty
Chris Christie, ríkisstjóri New Jersey í Bandaríkjunum, varði gærdeginum í fríi á ströndinni með fjölskyldu sinni. Ströndin er hluti af ríkisreknum garði, sem ríkisstjórinn fyrirskipaði sjálfur að yrði lokaður almenningi. AP-fréttaveitan greinir frá. Christie, sem er ríkisstjóri fyrir Repúblikanaflokkinn, er gríðarlega óvinsæll í heimafylki sínu. Hann gisti ásamt fjölskyldu sinni í húsnæði sem ríkisstjórar hafa til afnota í Island Beach State Park um helgina. Á blaðamannafundi í Trenton í gær, þar sem Christie ræddi lokanir sem standa nú yfir á skrifstofum hins opinbera, sagðist hann fljúga fram og til baka í þyrlu vegna þess að hann vill „almennt sofa þar sem fjölskyldan er.“ Christie var spurður á blaðamannafundinum hvort hann hefði látið sólina skína eitthvað á sig yfir daginn. Hann sagði svo ekki vera. Í kjölfar birtinga á myndum af ríkisstjóranum í sólbaði sagði talsmaður hans að Christie hefði vissulega ekki látið sólina skína á sig, hann hefði verið með derhúfu. Myndir af frídegi Christie-fjölskyldunnar á ströndinni má sjá í meðfylgjandi tísti.Chris Christie is so unpopular in New Jersey that he doesn't even care that he closed the beaches to the public and is using them himself. pic.twitter.com/bbwGl9S9iG— Josh Jordan (@NumbersMuncher) July 2, 2017 Skrifstofur hins opinbera í New Jersey eru nú lokaðar vegna örðugleika í rekstri ríkisstjórnar fylkisins. Öllum ríkisreknum görðum og skrifstofum sem vinna að umferðarmálum var lokað á föstudag. Mikil óánægja ríkir í New Jersey vegna ástandsins.
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira