Uppnám í Costco-hópnum eftir verðkönnun RÚV Jakob Bjarnar skrifar 13. júní 2017 10:19 Verðkönnun RÚV hefur vakið verulega athygli og reiði meðal þeirra sem vilja standa með Costco fram í rauðan dauðann.
Verulegt uppnám má greina Facebookhópnum „Keypt í Costco Ísl.- Myndir og verð.“ eftir að Ríkisútvarpið birti verðkönnun á vef sínum nú í morgun. Meginlínan í spjalli og fullyrðum fólks í hópnum er sú að um sé að ræða fullkomlega marklausa könnun, verið sé að bera saman epli og appelsínur og er RÚV sakað um að ganga erinda íslenskra stórkaupmanna. Verðkönnun RÚV er kynnt undir yfirskriftinni „Bónus og Krónan ódýrari en Costco“. Einingaverð fjörutíu vörutegunda sem valdar eru í samráði við ASÍ var skoðað og er samkvæmt könnuninni samanlagt lægra í Bónus og Krónunni en Costco. Þá kemur fram að vöruúrvalið sé minna því 9 vörutegundir af þeim 49 sem til stóð að taka á verðpúlsinn voru ekki til. „Stærð pakkninga gerir það jafnframt að verkum að greiða þurfti rúmar 56 þúsund krónur fyrir körfuna í Costco en um 20 þúsund í Krónunni og Bónus.“ Þá kemur jafnframt fram að farið hafi verið í verslanirnar fimmtudaginn 8. júní milli klukkan 14 og 18 og ávallt valin ódýrasta varan, óháð gæðum, miðað við einingaverð vöru í hverjum vöruflokki, óháð vörumerki og stærð pakkninga. „Borið er saman verð á hverja einingu, ýmist í kílóatali, lítratali eða stykkjatali. Fyrir eina einingu af hverri vörutegund á listanum hefði þurft að greiða 23.824 í Costco, sem var hæsta verðið, 21.404 í Bónus, sem var ódýrast, og 22.331 í Krónunni. Alls er því um 11% verðmunur á samanlögðu einingaverði í Bónus og Costco, lægsta og hæsta verðinu,“ segir í frétt RÚV, sem Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar.Epli og appelsínurEkki hefur farið fram hjá neinum að Costco hefur verið tekið opnum örmum á Íslandi og fer könnun RÚV vægast sagt öfugt ofan í þá sem eru virkir í Costco-hópnum. Og þeir finna könnuninni flest til foráttu. Og er fjölmargt nefnt til sögunnar sem talið er bogið við téða könnun. Margir þar telja að verið sé að bera saman epli og appelsínur.Sólveig Bergland Fjólmundsdóttir er stofnandi hins vinsæla Costco-hóps sem hefur á skömmum tíma hefur orðið stærsti, virkasti og vinsælasti spjallhópurinn á Facebook.„Hér er mörg sorgleg bjögun og rangur samanburður. Þetta er eins kjánalegt og að bera saman verð á bílum á eftirfarandi hátt: Bíll m/4 dekkjum Hekla kr. 3.9 milljónir Brimborg 2.8 milljónir - verðmunur 1.1 milljón. Ekki skoðuð gæði, notagildi eða neitt sem gerir könnunina trúanlega. RÚV - vandið ykkur betur !!,“ segir Hafsteinn Sævarsson.Euroshopper-pappírinn klárast á núll einniFjölmargir eru Hafsteini hjartanlega sammála um þetta atriði. Ein þeirra er Eva Bergmann Gunnlaugsdóttir sem á bágt með að trúa því að WC-pappírinn sé ódýrari í Bónus. „Kannski Euroshopper pappírinn þar sem að rúllan klárast á núll einni en costco pappírinn er miklu betri og mikið meira magn á hverri rúllu. Sama með kjúklingabringurnar, þar er örugglega tekið mið af Bónus bringunum sem eru sykursprautaðar í drasl en Costco selur Holta bringur. Tekið ekki mikið mark á þessari könnun.“ Daníel Sigurðsson bendir á annað atriði sem fólk telur að skipti máli sem er að ... „verðkönnun gerð á degi þegar allar hillur voru tómar í costco og aðeins dýrasta tegundin af hverri vöru var óseld.... spurning um að endurtaka þetta á fimmtudag þegar búið er að fylla á búðina...“Costco-áhrifinEnn aðrir benda svo á hin svokölluðu Costco-áhrif, sem eru þau að allir þeir sem eru í samkeppni við Costco hafa reynt að mæta henni með lækkuðu vöruverði. Gaman hefði verið að sjá könnun á verði sem var áður en Costco kom og bera það saman við kaup og kjör í Costco. Hörður Christians Sigurðsson er á þeirri skoðun: „Ha ha hvað skeði ? Náðust allt i einu hagstæðari samningar við heildsala ? Lækkaði flutningskostnaður? Eða var bara dreift brúnum umslögum eins og ofte áður?“RÚV sakað um að ganga erinda moldríkra kaupmannaReyndar telur fólkið í Costco-hópnum, sem er afar hliðhollt Costco svo það sé sagt, fátt eitt standast í þessari samantekt Sigríðar Auðar. Og, RÚV er sakað um að ganga erinda stórkaupmanna. Heiðrún Arna er ein þeirra sem telur það blasa við: „Greyið klíkuskapurinn í fjölmiðlum er að reyna bjarga vinum sínum sem eru nú þegar moldríkir á okkur eftir endalausa græðgi gegnum bónus og krónunna :) sorglegt að sjá þá reyna skapa múgæsing með illa gerðum verðkönnunum og halda að íslendingar hlaupi beint inn í okrið aftur....“
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira