Burðardýr í steininn fyrir innflutning á kílói af kókaíni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. júní 2017 10:12 Um enn eitt málið er að ræða þar sem burðardýr fá fangelsisdóma en skipuleggjendur sleppa með skrekkinn. Vísir/Getty
Karlmaður frá Brasilíu hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa flutt tæplega kíló af sterku kókaíni til landsins þann 31. mars síðastliðinn. Fíkniefnin flutti hann til landsins frá Hollandi til Keflavíkurflugvallar en þau voru falin í fölskum botni í ferðatösku hans. Maðurinn játaði brot sitt og var við ákvörðun refsingarinnar horft til þess. Sömuleiðis að ekkert benti til annars en að hann hefði verið burðardýr og ekki komið að skipulagningu innflutningsins. Þá veitti hann lögreglu liðsinni við að upplýsa málið þegar hann var handtekinn. Til frádráttar átján mánaða refsingunni kemur gæsluvarðhald sem hann var í frá 1. apríl og þangað til dómurinn var kveðinn upp í gær, 14. júní í Héraðsdómi Reykjaness. Kókaínið, sem var 87% að styrkleika, var gert upptækt og þarf maðurinn að greiða 1,3 milljónir króna í sakarkostnað. Þá var hollenskur ríkisborgara dæmdur í sex mánaða fangelsi á þriðjudag fyrir að hafa reynt að flytja um 250 grömm af kókaíni, 63% að styrkleika, til landsins þann 14. apríl. Efnin voru falin í fjörutíu pökkum innvortis. Játaði hann brot sitt.
Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Sjá meira