Segir Kínverja verða að standa undir aukinni ábyrgð Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. júní 2017 08:46 Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Nordicphotos/AFP
Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir ekki koma til greina að ganga til samninga við Kína vegna tilkalls Kína til manngerða eyja í Suður-Kínahafi. Þá segir hann jafnframt að Kínverjar verði að standa undir aukinni ábyrgð sinni. Guardian greinir frá. Bandaríkin leggjast gegn auknum umsvifum Kínverja á Suður-Kínahafi, þar sem uppbygging þeirra á svokölluðum manngerðum eyjum sé ólögleg. Tillerson segir að ekkert pláss sé til viðræðna um þessar eyjur og að Kínverjar beri aukna ábyrgð í alþjóðakerfinu. „Við leggjumst gegn uppbyggingu Kínverja á þessum eyjum og hervæðingu þessa hluta heimsins á alþjóðlegu hafsvæði. Kína er mikilvægur efnahagslegur sem og hernaðarlegur gerandi í alþjóðakerfinu. Við viljum eiga í uppbyggilegum samskiptum við Kínverja en getum ekki leyft þeim að nýta sér efnahagslegan mátt sinn til þess að koma sér undan mikilvægum málum. Þeir verða að viðurkenna að auknum mætti fylgir aukin ábyrgð.“ Í því samhengi segir Tillerson ljóst að Kínverjar verði að rísa upp og beita sér með fullnægjandi hætti í máli Norður-Kóreu og beita sér gegn því að yfirvöld þar í landi haldi áfram að þróa kjarnorkueldflaugar.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira