Þriggja manna leitað sem gengu í skrokk á manni á Grensásvegi fyrir að svína fyrir sig Birgir Olgeirsson skrifar 18. maí 2017 12:50 Einn árásarmannanna er talinn hafa notað verkfæri sem líktist kúbeini við árásina. Vísir/Hari
Þrír karlmenn eru grunaðir um að hafa gengið í skrokk á öðrum manni á Grensásvegi um klukkan hálf eitt í nótt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Vísi að grunur sé um að einn árásarmannanna hafi notað verkfæri sem líktist kúbeini við árásina, en mennirnir eru sagðir hafa ráðist á manninn vegna þess að hann hafði skömmu áður svínað fyrir bíl þeirra.Greint var fyrst frá átökunum á Grensásvegi á vef DV. Lögreglan segir mennina þrjá hafa veitt manninum eftirför á bíl sínum eftir að hann hafði, að því er þeir töldu, svínað fyrir þá á bíl sínum. Þegar maðurinn sem fyrir árásinni varð stöðvaði bíl sinn á rauðu ljósi á Grensásvegi, stukku mennirnir þrír úr bíl sínum og réðust á manninn. Lögreglan segir manninn sem fyrir árásinni varð hafa verið blóðugan og sáran en ekki alvarlega slasaðan. Leit hófst að mönnum þremur eftir að árásin hafði verið tilkynnt til lögreglu. Seinna um nóttina stöðvaði lögregla bíl á Breiðholtsbraut, en lögreglan fékk ekki staðfestingu á því að þetta væru mennirnir þrír sem leitað var að. Lögreglan hefur í dag fengið upptöku úr eftirlitsmyndavél á Grensásvegi og veit því hverjir mennirnir þrír eru og ætlar að hafa upp á þeim sem fyrst.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira