Spá snjókomu á morgun Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 1. apríl 2017 17:40 Það verður snjókoma á morgun. Vísir/Vilhelm
Spáð er snjókomu á Hellisheiði, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði, frá því snemma í fyrramálið og fram undir hádetgi þegar það hlánar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni, eftir ábendingu frá veðurfræðingi. Þar kemur fram að einnig verði snjókoma á fjallvegum norður í land og vestur á firði um tíma nærri hádegi, en á Steingrímsfjarðarheiði er spáð talsverðu hríðarkófi með norðaustan 16-19 metrar á sekúndu, frá því skömmu fyrir hádegi og fram undir kvöld. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Veðurstofu Íslands um veðurhorfur næsta sólarhringinn á landinu, verður fremur hæg breytileg átt, en norðaustan strekkingur á Vestfjarðakjálkanum. Skýjað með köflum og úrkomulítið um landið sunnan- og austanvert, en annars slydda eða rigning með köflum. Hiti nálægt frostmarki á Vestfjörðum, upp í 8 stig á Suðausturlandi. Gengur í suðaustan 13-20 metrar á sekúndu á morgun með slyddu í fyrstu, síðan rigningu og súld, einkum sunnan- og vestanlands, en heldur hægari fyrir norðan. Suðlægari og dregur úr vindi seinnipartinn, fyrst sunnanlands. Hlýnar í veðri.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira