Vatnajökulsþjóðgarður dæmdur til að greiða starfsmanni 128 þúsund í bætur Birgir Olgeirsson skrifar 16. mars 2017 16:12 Í Ásbyrgi sem er hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. Vísir/Pjetur
Vatnajökulsþjóðgarður þarf að greiða fyrrverandi starfsmanni 128 þúsund krónur vegna fjarvistabóta sem hann hafði farið fram á að fá greitt. Héraðsdómur Austurlands féllst á kröfu starfsmannsins í febrúar í fyrra og staðfesti Hæstiréttur þann dóm í dag. Auk þess að þurfa að greiða starfsmanninum fyrrverandi 128 þúsund krónur ásamt dráttarvöxtum þarf Vatnajökulsþjóðgarður að greiða málskostnað starfsmannsins fyrir Hæstarétti sem nemur 500 þúsund krónum. Héraðsdómur Austurlands hafði dæmt þjóðgarðinn til að greiða málskostnað starfsmannsins upp á 550 þúsund krónur. Starfsmaðurinn hafði starfað samkvæmt tímabundnum ráðningarsamningi við landvörslu í Lónsöræfum. Var deilt um það hvort starfsmaðurinn ætti rétt á fjarvistaruppbót til viðbótar við laun sín samkvæmt kjarasamningi stafsgreinasambandsins. Var það mat dómstóla að samkvæmt lögum væri lagður sá skilningur á málið að það ætti við tímabundin störf á vinnustað, þar á meðal vinnustað sem teldist fastur í skilningi samningsins, svo lengi sem vinnustaðurinn væri í óbyggðum þar sem ekki væri unnt að sækja hann frá heimili eða fastri aðstöðu vinnuveitanda í byggð.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Sjá meira