Stormur í dag og á morgun Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 12. desember 2016 07:24 Austurhluti landsins fær versta veðrið í dag. Vísir/Vilhelm
Veðurstofan spáir vestan stormi og jafnvel roki á austanverðu landinu um og upp úr hádegi og fram undir kvöld. Búast má við éljagangi og vindhviðum upp í 40 metra á sekúndu í Öræfum og norður með austurströndinni. Gert er ráð fyrir suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu og hlýnandi veðri á morgun. Á vef Veðurstofunnar segir að nú með morgninum gangi frekar kröpp lægð inn á landið á svæðið í kringum Skeiðarársand. Á undan lægðinni sé austlæg átt, allhvöss sums staðar og rigning. Þá hvessi talsvert úr vestri og suðvestri um hádegi en þá getur vindhraði náð 25 metrum á sekúndu. „Í ljósi þess hve kröpp lægðin er, er áhrifasvið hennar ekki mjög mikið þannig að íbúar vestantil á landinu verða hennar lítið varir á meðan austurhluti landsins fær versta veðrið. Í vestanáttinni kólnar og gæti farið í slyddu á láglendi og snjókomu til fjalla. Þessi lægð fer hratt yfir og dregur úr vindi og úrkoma strax í kvöld,“ segir á vefsíðu Veðurstofunnar. Ballið er þó ekki búið eftir daginn í dag því á morgun má búast við annarri lægð sem mun sums staðar slá í storm. Hvassast verður sunnan og vestan til á landinu og fylgir lægðinni rigning og hlýnandi veður, sem er ekki ólíkt veðurlagi síðastliðinna vikna.
Veður Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Fleiri fréttir Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Sjá meira