Veðurstofan varar við úrhelli: Lægðirnar koma hver af annarri Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 10. september 2016 12:05 Það var aðeins byrjað að rigna á Akureyri í morgun. vísir
Veðurstofan varar við mikilli rigningu á Norðurlandi, Ströndum og norðanverðum Vestfjörðum í dag. Vegna úrhellisins er aukin skriðu-og flóðahætta á þessum slóðum. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að veðrið fari nú að taka á sig æ meiri haustblæ þar sem lægðirnar verða dýpri og koma nú hver af annarri með tilheyrandi vindum og rigningu. Hiti helst þó enn um sinn ágætur miðað við árstíma. „Í dag fara öflug samskil vestur yfir landið og rignir víða talsvert, en reikna má með úrhellisrigningu á Norðurlandi og Ströndum eftir hádegi. Dregur síðan talsvert úr vindi og vætu í nótt og á morgun,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur eru annars þessar: Norðlæg átt 8-18 metrar á sekúndu, hvassast á annesjum norðan til. Víða rigning, en mikil rigning norðan til á landinu. Fer að draga úr vindi og úrkomu norðaustan til í kvöld, en norðvestan til í nótt. Vestan 10-15 metrar á sekúndu nyrst á landinu á morgun og áfram rigning, en annars mun hægari og skúrir. Lægir víða og styttir upp annað kvöld. Hiti 5 til 13 stig.
Veður Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fleiri fréttir Starfsfólkinu boðið lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sjá meira