Bein útsending: Kynna ný úrræði fyrir ungt fólk við kaup á fyrstu íbúð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. ágúst 2016 11:52 Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson þegar þeir kynntu nýja ríkisstjórn. vísir/Ernir
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra munu klukkan 13 í dag kynna ný úrræði ríkisstjórnarinnar til að aðstoða ungt fólk við kaup á fyrstu íbúð. Úrræðin felast samkvæmt heimildum Vísis meðal annars í því að minnka vægi verðtryggingar og gera óverðtryggð lán að augljósari kosti.Frumvarp til laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð annars vegar og frumvarp til breytingar á lögum um vexti og verðtryggingu voru til umræðu á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Uppfært klukkan 14 Fundinum er lokið en að neðan má sjá tilkynningu frá ráðuneytinu vegna fundarins. Þar fyrir neðan eru tenglar á nýjar fréttir í framhaldi af fundinum. Fasteignakaup verða auðveldari og afborganir léttari fyrir nýja kaupendur á fasteignamarkaði verði tillögur ríkisstjórnarinnar í frumvarpi til laga um stuðning við kaup á fyrstu íbúð samþykktar. Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynntu aðgerðirnar í Hörpu í dag. Tilgangurinn er að auka og hvetja til húsnæðissparnaðar og auðvelda fyrstu kaup. Jafnframt fela þær í sér stuðning við þá sem vilja taka óverðtryggð lán þar sem samspil greiðslna inn á höfuðstól og afborganir gera greiðslubyrði þeirra á fyrstu árum sambærilega við löng verðtryggð lán hjá þorra einstaklinga. Í frumvarpinu er kveðið á um þrjár leiðir sem rétthafi getur valið á milli við ráðstöfun á viðbótariðgjaldi. Þær eru heimild til úttektar á uppsöfnuðu viðbótariðgjaldi til kaupa á fyrstu íbúð, heimild til að ráðstafa viðbótariðgjaldi inn á höfuðstól láns, sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð, yfir tíu ára samfellt tímabil og að lokum heimild til að ráðstafa viðbótariðgjaldi sem afborgun inn á óverðtryggt lán, sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð, og sem greiðslu inn á höfuðstól þess. Úrræðið er varanlegt en hámarkstími er samfellt tíu ára tímabil fyrir hvern einstakling. Greiðslur hvers einstaklings inn á séreignarsparnað geta numið allt að fimm milljónum króna á tíu ára tímabili, samtals 10 milljónir fyrir par. Fyrir þá sem ekki eru þegar með séreignarsparnað getur sú ákvörðun að leggja fyrir og nýta sparnað til húsnæðiskaupa samsvarað um 3% launahækkun í 10 ár vegna skattalegs hagræðis og mótframlags launagreiðanda.Fleiri ungir í foreldrahúsum Á árunum 2005 til 2014 jókst hlutfall ungs fólks á leigumarkaði verulega, úr 12% í 31%. Jafnframt er fólk á aldrinum 25-29 ára mun líklegra til að búa í foreldrahúsum nú en fyrir áratug. Eftirspurn eftir minni íbúðum hefur einnig aukist mikið á undanförnum árum með tilheyrandi verðhækkun húsnæðis, en minnstu eignirnar hafa hækkað hlutfallslega mest og rúmlega tvöfalt meira en sérbýli frá árinu 2009. Fyrirhuguð hækkun lífeyrissjóðsiðgjalda í 15,5% leiðir til þess að hjá einstaklingi sem byrjar snemma að leggja fyrir séreignarsparnað geta eftirlaun orðið hærri en laun við starfslok og því getur verið hagkvæmt að nýta hluta séreignarsparnaðar fyrr á æviskeiðinu. Aðgerðirnar stuðla að heilbrigðari skuldahlutföllum heimila og auka getu til fjárfestingar í fyrstu fasteign, samhliða því að styðja við peningastefnuna með því að draga úr vægi verðtryggðra lána. Valfrelsi er þó lykilatriði og heimild til nýtingar skattfrjáls séreignarsparnaðar vegna kostnaðar af fyrstu fasteign er óháð lánsformi. Úrræðin standa öllum til boða sem greiða eða munu greiða í séreignarsparnað og hafa ekki átt íbúð áður.Núgildandi séreignarúrræði framlengt og takmörkun á hámarkslengd ÍslandslánaÍ frumvarpi til laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð verður jafnframt lagt til að gildandi úrræði um nýtingu séreignarsparnaðar til lækkunar á höfuðstól fasteignalána verði framlengt um tvö ár. Um 37 þúsund manns nýta þetta úrræði í dag. Lagt er til að einstaklingar sem þegar hafi hafið uppsöfnun á iðgjöldum, til öflunar á íbúðarhúsnæði til eigin nota á grundvelli núgildandi ákvæðis til bráðabirgða í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, en ekki nýtt sér þá heimild fyrir 1. júlí 2017, verði heimilað að flytja áunnin réttindi sín og nýta þau á grundvelli frumvarpsins ef um kaup á fyrstu íbúð er að ræða. Jafnframt er lagt til að rétthafar sem þegar hafa nýtt rétt á grundvelli umrædds ákvæðis til bráðabirgða og eftir atvikum ráðstafað iðgjöldum inn á höfuðstól fasteignarveðláns, sem tekið var í tengslum við öflun á íbúðarhúsnæðinu, verði heimiluð áframhaldandi nýting á viðbótariðgjaldi sínu til greiðslu inn á lánið uns tíu ára samfellda tímabili frumvarpsins er náð. Heimildin tekur til þeirra sem voru að kaupa sitt fyrsta húsnæði. Þá verður lagt fram annað frumvarp um takmörkun 40 ára verðtryggðra jafngreiðslulána. Almenna reglan verður að ekki sé heimilt að taka verðtryggð jafngreiðslulán til lengri tíma en 25 ára. Undanþágur frá því verði veittar ungu fólki,tekjulágum einstaklingum og einstaklingum sem taka lán með lágu veðsetningarhlutfalli. Helstu efnisþættir frumvarps um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð eru eftirfarandi: Stuðningur fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Úrræðið gildir í tíu ár samfellt. Heimilar ráðstöfun séreignarsparnaðar sem safnast hefur upp á tilteknu tímabili til kaupa á fyrstu íbúð. Heimilar ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á fasteignalán sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð og sem tekið var vegna kaupanna. Heimilar ráðstöfun séreignarsparnaðar til afborgunar á óverðtryggðu láni og inn á höfuðstól láns, sem tryggt er með veði í húsnæðinu. Séreignarsparnaður sem nýttur er til greiðslu inn á höfuðstól lána og eftir atvikum sem afborgun vegna kaupa á fyrstu íbúð er skattfrjáls. Hámarksfjárhæðir og önnur viðmið: Hámarksfjárhæð á ári (12 mánuðir), samtals 500 þús. kr. á einstakling. Hámarksiðgjald, 4% frá launþega og 2% frá launagreiðanda. Einstaklingur spari a.m.k. til jafns við framlag launagreiðanda. Áskilið er að rétthafi eigi að minnsta kosti 50% hlut í íbúðarhúsnæðinu.
Alþingi Tengdar fréttir Stefnt að því að þeim fjölgi sem búa í eigin húsnæði Verkefnið Fyrsta fasteign er sérstaklega hugsað fyrir þann hóp sem hefur átt í basli með að koma þaki yfir höfuð sér. 15. ágúst 2016 14:25 Formaður VG: Fjarri því að vera boðað afnám verðtryggingar Katrín Jakobsdóttir segir að svo líti út fyrir að boðaðar aðgerðir ríkistjórnarinnar þýði að fólk með háar tekjur fái mestan skattaafslátt. 15. ágúst 2016 14:26 Fyrsta fasteign: „Rökrétt framhald leiðréttingarinnar“ Nýju frumvarpi er ætlað að hvetja til húsnæðissparnaðar og auðvelda ungu fólki að fjárfesta í sinni fyrstu fasteign. 15. ágúst 2016 13:48 Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fleiri fréttir Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Sjá meira
Stefnt að því að þeim fjölgi sem búa í eigin húsnæði Verkefnið Fyrsta fasteign er sérstaklega hugsað fyrir þann hóp sem hefur átt í basli með að koma þaki yfir höfuð sér. 15. ágúst 2016 14:25
Formaður VG: Fjarri því að vera boðað afnám verðtryggingar Katrín Jakobsdóttir segir að svo líti út fyrir að boðaðar aðgerðir ríkistjórnarinnar þýði að fólk með háar tekjur fái mestan skattaafslátt. 15. ágúst 2016 14:26
Fyrsta fasteign: „Rökrétt framhald leiðréttingarinnar“ Nýju frumvarpi er ætlað að hvetja til húsnæðissparnaðar og auðvelda ungu fólki að fjárfesta í sinni fyrstu fasteign. 15. ágúst 2016 13:48