Ísland fékk sæti en missti um leið sæti í fimleikakeppni ÓL Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2016 15:00 Berglind Pétursdóttir og Irina Sazonova. Vísir/Anton
Ísland á fulltrúa í fimleikakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í fyrsta sinn þegar undankeppni fjölþrautarinnar á ÓL í Ríó fer fram í kvöld. Irina Sazonova vann sér sæti í fimleikakeppninni og keppir í kvöld um það að komast í 24 manna úrslit í fjölþraut kvenna. Það verður mjög erfitt enda samkeppnin gríðarleg. Í íslenska hópnum er ein kona sem þekkir fimleikakeppni kvenna vel á Ólympíuleikum en Berglind Pétursdóttir, sem er nú flokkstjóri og sjúkraþjálfari fimleikanna á ÓL 2016, hefur dæmt í fimleikkeppni leikanna. „Ég hef farið tvisvar áður og þá hefur mér verið boðið sem dómari. Það sem er kannski ekki eins skemmtilegt er að hingað til hafa lönd alltaf átt rétt á því að hafa dómari ef þau eru með keppenda," segir Berglind sem var að vonast til þess að fá að dæma á sínum þriðju Ólympíuleikum. „Þegar við loksins eigum keppanda þá er búið að breyta reglunum og við eigum ekki rétt á dómara þótt að Irina sé að keppa. Við höfðum síðan ekki heppnina með okkur í að vera dregin út sem dómari," segir Berglind. „Ef að sömu reglur hefðu verið í gildi þá hefði ég verið í dómarahlutverkinu hér. Þetta er samt nýtt sjónarhorn fyrir mig og ég hef sem dæmi ekki verið í Ólympíuþorpinu áður," segir Berglind. Irina Sazonova keppir í undankeppni fjölþrautarinnar klukkan 20.30 í kvöld að íslenskum tíma.
Fimleikar Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Valur - Stjarnan | Hörkuleikur á Hlíðarenda Körfubolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Álftanes - Höttur | Nýtt upphaf í forsetahöllinni Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Fleiri fréttir Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur fyrir að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Ármann - Keflavík | Bragi mætir gömlu félögunum Valur - Stjarnan | Hörkuleikur á Hlíðarenda Álftanes - Höttur | Nýtt upphaf í forsetahöllinni Sindri - ÍR | Fyrsti leikurinn á Höfn Varað við miklum hita yfir kappakstrinum í Singapúr Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Fattaði ekki að hann hefði fótbrotnað Hljóðnema á dómarana og hvar er Kane? Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Wirtz sé búinn að missa trúna Þekkir ekkert annað en pressu Djús en ekki bjór Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Dagskráin í dag: Bónus-deildin hefst með látum Sjá meira