Stefnir í átján stiga hita sunnanlands Atli Ísleifsson skrifar 30. júlí 2016 10:37 Veðurspáin er fín fyrir daginn, sunnanlands Óskar P. Friðriksson „
Það lítur mjög vel út í dag fyrir Suður- og Vesturland og hitinn er kominn upp í fimmtán gráður á nokkrum stöðum,“ segir Helga Ívarsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofunni. Hún segir að búist sé við björtu veðri og jafnvel inn til landsins á Norðurlandi vestra. „Þar er líka búið að létta svolítið til. Norðanlands og austanlands er skýjað og lítilsháttar væta af og til.“ Helga segir að á morgun verði heldur hægari vindur, norðaustlæg og breytileg átt og dálitlar skúrir á víð og dreif, sérstaklega inn til landsins síðdegis. „Á Eldhrauni, Sámsstöðum og Önundarhorni hefur hitinn þegar farið upp í fimmtán stig í dag, þannig að mesti hitinn er á Suðurlandi. Við spáum að hann fari upp í átján stig í dag. Fyrir norðan er svalara. Það eru ekki nema sjö, átta gráður á annesjum og fer kannski upp í tíu,“ segir Helga. Á morgun gerir spáin ráð fyrir að ekki verði alveg jafn heitt á Suðurlandi og í dag, en hlýrra fyrir norðan. „Þar eru meiri líkur á að það sjáist aðeins til sólar inn á milli þó að það geti komið stöku skúrir. Á mánudaginn má svo búast við skúrum eiginlega um allt land. Það eru mestar líkur á að Vestfirðirnir sleppi. Það gætu orðið nokkuð góðar dembur síðdegis.“
Veður Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira