Veðurspáin fyrir verslunarmannahelgi hefur skánað umtalsvert Birgir Olgeirsson skrifar 25. júlí 2016 12:38 Spákort Veðurstofu Íslands fyrir laugardag. Vísir/vedur.is
Veðurspáin fyrir verslunarmannahelgina hefur skánað umtalsvert frá því á föstudag. Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir ákveðna spá vera í kerfinu fyrir verslunarmannahelgina sem virðist vera búin að ná læstri stöðu. Því er ekki von á miklum breytingum á veðri, sé tekið mið af spánni, en vissulega þurfi að fylgjast vel með þegar nær dregur. „Það er búist við úrkomu á föstudagskvöldinu á norðausturhorninu og norðan til eins og er. Það er frekar rakt yfir landinu og það heldur áfram. Helst á laugardag sem það er aðeins skárra, svo er aftur útlit fyrir súld á sunnudag,“ segir Elín. Töluverður munur er á spánum er varða norður- og suðurhelminga landsins. Á laugardag verður til að mynda varla ský á lofti í Reykjavík, Árnesi og Vestmannaeyjum og léttskýjað á suðausturhorni landsins. Á meðan verður alskýjað á norðurhluta landsins og hitatölur lægri. Elín segir þetta eðlilegt í norðan átt sem verður ríkjandi út vikuna, en þá er þungbúið of oft úrkomusamt Norðanlands, en bjart og þurrt syðra. Í sunnanátt er Suðurland áveðurs og þar þá oft rigning, veður þungbúið og að sumarlagi svalt. Norðurlandi er þá hlémegin í sunnanáttinni og þá þurrt þar og hlýtt veður. „Júní var rosagóður fyrir norðan og þá var rigning sunnanlands. Nú er nákvæmlega andstæðan.“Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á miðvikudag og fimmtudag:Norðan 5-10 m/s, en 8-13 austast á landinu. Skýjað norðan- og austanlands og dálítil rigning eða súld með köflum. Bjartviðri um landið sunnan- og suðvestanvert. Hiti 7 til 19 stig, hlýjast á Suðurlandi.Á föstudag:Norðan 3-10 m/s. Rigning norðaustantil, annars skýjað með köflum og úrkomulítið en bjartviðri suðvestantil. Hiti 6 til 12 stig N-til en 10-16 stig syðra.Á laugardag:Áframhaldandi norðlæg átt, skýjað og þurrt að kalla um landið norðanvert en bjartviðri sunnan jökla. Fremur svalt fyrir norðan en hiti 10 til 15 stig um landið sunnanvert.Á sunnudag:Fremur hæg norðlæg átt. Bjartviðri sunnan jökla, annars skýjað og víða þokusúld eða dálítil væta. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira