Hiti gæti farið yfir 20 stig í innsveitum víða um land Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. júní 2016 10:47 Hitaspá Veðurstofu í dag lítur ágætlega upp. mynd/veðurstofa íslands „
Það verður mjög gott veður um helgina og fínt veður í næstu viku,“ segir Theodór Freyr Hervarðsson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands aðspurður um hversu lengi blíðviðrið sem leika mun við landsmenn í dag. Theodór bendir á að hiti hafi mest farið upp í 24 gráður í gær á Fljótsdalshéraði og í dag geti hiti víða farið yfir 20 stig, þá aðallega í innsveitum á Austurlandi, Suðurlandi og Norðurlandi. Einhverjir íbúar höfuðborgarsvæðisins tóku eflaust eftir þykkri þoku við ströndina í morgun og segir Theodór að það sé einmitt hætta á þoku um helgina. Þokan kemur til vegna þess að mjög hlýtt loft kemur yfir kaldan sjó þannig að sjórinn kælir loftið.Veðurhorfur á landinu eru annars þessar næstu daga:Í dag, föstudag: Hægviðri eða hafgola og yfirleitt léttskýjað inn til landsins, en allvíða skýjað eða þokuloft við sjóinn. Hiti frá 8 stigum í þokulofti við strendur upp í 22 stig í innsveitum.Á sunnudag: Suðaustan og austan 5-10 metrar á sekúndu með suður- og norðurströndinni, annars hæg breytileg átt. Bjartviðri að mestu á Austurlandi, annars skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar væta. Hiti frá 7 stigum við norðurströndina upp í 20 stig austanlands.Á mánudag: Norðaustan og austan 3-8 metrar á sekúndu, skýjað með köflum og dálítil væta norðanlands. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast suðvestanlands.Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Austlæg átt ríkjandi, bjartviðri á köflum á vesturhelmingi landsins, annars skýjað að mestu en úrkomulítið. Áfram tiltölulega hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira