Allt um veðrið: Rigning í dag og ofsaveður í kvöld Bjarki Ármannsson skrifar 13. mars 2016 09:30 Vindaspá Veðurstofu fyrir klukkan ellefu í kvöld. Von er á ofsaveðri norðvestantil á landinu. Mynd/Veðurstofa
Spáð er stormi eða roki, 20 til 25 metrum á sekúndu, á landinu seint í dag en ofsaveðri, 28 til 32 metrum á sekúndu, norðvestan til í kvöld. Þá má búast við fyrstu asahláku vetrarins í dag um land allt og mun hún ágerast þegar líður á kvöldið. Spáð er talsverðri rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu samhliða hlýnandi veðri. Veðurstofa segir viðbúið að aukið álag verði á afrennsliskerfi bæja og bendir á að gott er að hreinsa vel frá niðurföllum og útidyrum kjallara. Á vef Veðurstofu er bent á að svipað veður hafi gert fyrir nær akkúrat ári, þann 14. mars 2015, og var það mesta hvassviðri þess stormasama vetrar. Á morgun á sunnanáttin að ganga smám saman niður og þá kólnar undir frostmark vestast á landinu. Opið verður á skíðasvæðum víða um land í dag, til dæmis á Dalvík, í Stafdal, á Siglufirði og á Akureyri. Lokað verður í Bláfjöllum. Hviður á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli eru nú um þrjátíu til fjörutíu metrar á sekúndu en það mun lægja heldur um stund um hádegi. Snjókoma og hálka er á Hellisheiði og hálka í Þrengslum. Fróðárheiði er lokuð og sums staðar nokkur hálka eða snjóþekja á Vesturlandi. Vegir á Norðurlandi vestra eru víða auðir en farið er að snjóa á Öxnadalsheiði. Hálka er á Mývatnsöræfum.
Veður Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira