Spilavíti eru „víti til varnaðar“ Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar 17. mars 2016 18:19 Fyrir Alþingi liggur frumvarp um að lögleiða spilavíti eða spilahallir, sem er fínna orð yfir sama hlut. Við í Vinstri hreyfingunni grænu framboði höfum lagst alfarið gegn lögleiðingu spilavíta og teljum það auka þann gífurlega vanda sem spilafíkn er og vinna gegn lýðheilsusjónarmiðum. Flutningsmenn frumvarpsins eru þingmenn úr röðum Framsóknarflokks,Sjálfstæðisflokks og úr Bjartri framtíð. Margar ástæður eru fyrir því að við Íslendingar eigum ekki að bjóða upp á lögleg spilavíti. Við höfum komist ágætlega af án slíkrar starfsemi hingað til og ég tel að samfélagsleg og lýðheilsuleg rök séu sterk gegn því að við lögleiðum slíka starfsemi. Willum Þór Þórsson, flutningsmaður spilavítafrumvarpsins, segir að þau séu góð viðbót við afþreyingu fyrir ferðamenn. Það skýtur skökku við þegar kannanir meðal ferðamanna sýna skýrt fram á að lang mestur hluti ferðamanna kemur fyrst og fremst til Íslands vegna náttúrunnar og vill njóta sérstakar náttúrufegurðar landsins. Mér finnst því engin ástæða til að við Íslendingar leggjum þá áherslu á spilavíti til að trekkja að eða lokka hingað ferðamenn. Eða viljum við verða Las Vegas eða Mónakó norðursins ? Væri ekki nær að stjórnvöld komi loks fram með alvöru uppbyggingu, sýn og stefnu í ferðaþjónustu sem ferðaþjónustuaðilar og aðrir hagsmunaaðilar hafa beðið mikið eftir um allt land ? Gleymum því ekki að oftar en ekki þrífst ýmis konar vafasöm starfsemi í kringum spilavíti erlendis á borð við vændi, mansal og eiturlyfjasala og margháttuð glæpastarfsemi virðist oftar en ekki verða eins konar hliðarbúgrein spilavíta, þótt auðvitað séu til undantekningar á því eins og öðru.Þúsundir Íslendinga glíma við alvarlega spilafíkn Spilafíkn er alvarlegt þjóðfélagsmein og ætla má að um 12 þúsund Íslendingar glími við einhvers konar sjúklega spilafíkn. Rannsóknir hafa sýnt fram á að í áhættuhópnum séu ungir karlmenn og til SÁÁ leita stöðugt fleiri sem glíma við alvarlega spilafíkn sem leitt hefur m.a. til fíkniefnavanda og glæpastarfsemi. Í frumvarpinu er kveðið á um að 21 árs og eldri verði heimilaður aðgangur að spilavítum. Við þekkjum vandann sem spilafíklar glíma við og við verðum að horfa til hagsmuna fólks sem orðið hefur spilafíkninni að bráð og sorglegar afleiðingarnar fyrir fjölskyldur þeirra sem í mörgum tilfellum hafa misst allar sínar eigur. Á undanförnum árum hafa fjárhættuspil á netinu á erlendum síðum aukist mikið og ólöglegir pókerklúbbar verið upprættir. Við höfum lögleitt starfsemi spilakassa, flokkahappdrætti, lottó og getraunir sem félagasamtök hafa notið hagnaðar af. Mikilvægt er að endurskoða og styrkja lagaumhverfið um þá starfsemi í stað þess að auka við vandann með því að lögleiða spilavíti. Á síðasta kjörtímabili lagði Ögmundur Jónasson fram frumvarp sem reisa átti skorður við spilastarfsemi í landinu og átti að takmarka aðgengi að netspilun á erlendum síðum. Frumvarpið náði ekki afgreiðslu en ég tel þörf á sterkari lagaumgjörð um þessi málefni ásamt því að efla lögregluna í því að uppræta ólöglega spilastarfsemi. Einnig þarf að taka fastar á vanda spilafíkla og fjölga þarf meðferðarúrræðum.Sérstaða Íslands eftirsóknarverð Við Íslendingar erum oft feimin við að vera öðruvísi en aðrir. Vísað er til þess að spilavíti séu leyfð t.d. í Danmörku og Svíþjóð og að vítt og breitt um heiminn þyki þetta eðlilegur hlutur. En er ekki allt í lagi að við séum ekki nákvæmlega eins og allir aðrir ef við erum ekki sannfærð um að þetta geri íslenskt mannlíf eftirsóknarverðara og betra, heldur auki frekar á vandann vegna spilafíknar? Þeir sem tala fyrir lögleiðingu spilavíta telja að betra sé að fá starfsemina upp á yfirborðið, að frelsið eigi að vera að leiðarljósi og enda eigi forræðishyggju. En frelsi eins getur verið helsi annars og horfa verður til samfélagslegra, siðferðilegra og lýðheilsulegra sjónarmiða í þessu samhengi. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að vinna skuli að aukinni lýðheilsu í landinu. Ég get ekki séð að lögleiðing spilavíta sé skref í þá átt. Ég óttast nefnilega að sá hópur sem er veikastur fyrir eigi eftir að verða helstu viðskiptavinir spilavítanna. Willum Þór hefur sagt að stuðla eigi að ábyrgri spilamennsku og að einstaklingar gætu óskað eftir því við spilavítið að þeir geti setti sig á bannlista. Mundi virka fyrir alkóhólista að óska eftir því við starfsmenn vínbúðanna eða kráaað vera settur á bannlista? Ég held að það sé mikil draumsýn að halda að slíkt virki . Í frumvarpinu er talað um að koma eigi fram með ýmis úrræði fyrir spilafíkla og vinna að forvörnum. Til hvers að lögleiða spilavíti sem auka vandann og leggja síðan til að auka fjármuni til þess að koma í veg fyrir vanda sem skapast ef hægt er að sleppa við vandamálið með því að lögleiða ekki slíka starfsemi? Ég vona að þær skynsemisraddir heyrist, bæði á Alþingi og úti í þjóðfélaginu, að þetta sé ekki sú viðbót við íslenskt samfélag sem við þurfum á að halda. Ef það er forsjárhyggja að leggjast gegn lögleiðingu spilavíta þá er það góð forsjárhyggja að mínu mati. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lilja Rafney Magnúsdóttir Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar