Skautasvell á Ingólfstorgi á aðventunni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. nóvember 2015 12:29 Framkvæmdir við skautasvellið hófust í dag. Vísir/Anton
Glöggir borgarbúar sem hafa átt leið um miðborgina í dag hafa líklega tekið eftir því að nú standa yfir framkvæmdir á Ingólfstorgi. Þar stendur til að vera með skautasvell á aðventunni. Skautasvellið mun opna á þriðjudaginn eftir helgi og verður það opið frá hádegi fram eftir kvöldi til og með 23. desember. Frítt verður inn og verður hægt að leigja skauta og svokallaðar skautagrindur til þess að aðstoða minnstu krakkana. Framkvæmdir hófust í dag en það er fyrirtækið Nova sem stendur fyrir þessu. Hjálmar Sveinsson, formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, segir að ráðið hafi tekið vel í þessa hugmynd þegar hún kom á þeirra borð. „Nova bauðst til þess að sjá um þetta og þetta þýðir að hluti Ingólfstorgs verður skautasvell og hluti verður jólamarkaður,“ en á jólamarkaðinum verður hægt að kaupa veitingar og ýmiskonar jólavarning. Skautasvellið er nokkuð stórt eða um 400 fermetrar en þetta er ekki í fyrsta sinn sem skautasvell er sett upp á aðventunni, það var fyrst gert árið 2006. Undanfarin ár hefur Ingólfstorg verið undirlagt jólamarkaði á aðventunni sem verður nú minni en venjulega svo skapa megi pláss fyrir skautasvellið.
Veður Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira