Guðjón: Ég veit hvað þarf til að vinna en fólk vill bara eitthvað notalegt Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. nóvember 2015 13:15 Guðjón Þórðarson gerði ÍA að Íslandsmeisturum í þrígang. vísir/valli
Guðjón Þórðarson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í fótbolta, var í löngu og afar áhugaverðu viðtali í Akraborginni á X977 í gær. Þar fór Skagamaðurinn klettharði á hundavaði yfir ferilinn allt frá því hann hóf að spila með frábæru liði ÍA á áttunda áratug síðustu aldar og til dagsins í dag. Guðjón hefur þjálfað síðan 1986 og afrekað margt. Hann hefur þó ekki verið við stjórnvölinn hjá liði síðan hann var rekinn frá Grindavík með látum fyrir þremur árum síðan. Hann segist fullmeðvitaður um að hann sé ekki allra en finnst þó fólk vera mikið í því að tala um hluti sem það veit ekkert um. „Ég veit að það eru skiptar skoðanir á mér. Það er fólk sem hefur skoðanir á mér sem þekkir mig ekki. Það sér samt alveg leik á borði að tala um mann og margt af því sem um mann er sagt er sérkennilegt og skrítið. Það er skrítið þegar fólk er að rispa á manni bakið með hnífunum að það þekkir mann ekki einu sinni,“ segir Guðjón um stöðu sína innan fótboltaheimsins í dag. Guðjón hefur alltaf stigið mjög fast til jarðar hvar sem honum hefur niður komið, svona til að nota hans eigin frasa. Hann stendur þó og fellur með sínum ákvörðunum í gegnum tíðina. „Maður tekur þær ákvarðanir sem eru bestar hverju sinni. Það er enginn sem kíkir til baka og hefði engu viljað breyta. Maður verður að standa við sínar ákvarðarnir. Ef þú ætlar að láta málamiðlarnir ráða för tínirðu sjálfum þér. Það er hættulegt. Þá er betra að stíga til hliðar og tapa ekki sjálfum sér,“ segir Guðjón.„Það var ekki erfið ákvörðun að fara í mál“vísir/valliSegir meira um þá sem tala illa um mig Sem fyrr segir þjálfaði hann síðast Grindavík í Pepsi-deildinni sumarið 2012. Liðið féll með stæl og er eitt versta liðið í sögu tólf liða deildar. Hann var rekinn frá Grindavík en fór í mál við knattspyrnudeildina þar sem honum fannst ekki rétt staðið að uppsögninni og vildi hann fá samninginn greiddan að fullu. Svo fór að hann vann málið og fékk ríflega átta milljónir króna. „Það var ekki erfið ákvörðun að fara í mál. Þannig var að málum staðið að það kom ekkert annað til greina en að verja rétt sinn. Ég átti ákveðinn rétt sem launþegi. Þetta fór í gegnum tvö dómsstig og vannst eins og góður fótboltaleikur 3-0 í Hæstarétti,“ segir Guðjón, en Grindjánar hafa farið ófögrum orðum um Guðjón í eftirmálanum. „Þetta segir meira um fólkið sem talar svona en nokkurt annað. Skítkast og ófagleg framkoma segir meira um þá en mig. Vissulega hefur þetta áhrif og þetta hefur haft skaðleg áhrif fyir mig.“ „Ég get sagt þér frá því að stjórnarmaður í efstu deild hafði samband við mig og hafði áhuga á að ráða mig til starfa. Formaðurinn í því félagi sagði að það kæmi ekki til greina að ráða Guðjón á meðan hann stæði í málaferlum við annað aðildarfélag,“ segir Guðjón.„Ég veit alveg hvernig á að búa til fótboltalið“vísir/valliGamli skólinn lifir Á löngum ferli hefur Guðjón þjálfað hér heima, í Noregi og á Englandi auk þess að stýra íslenska landsliðinu með góðum árangri. Þrátt fyrir að vera án starfs í þrjú ár segist hann hafa það sem þarf til að gera góða hluti. „Ég veit alveg hvernig á að búa til fótboltalið. Ég veit hvernig á að koma mönnum í form og þekki þær aðferðir sem þarf til að búa til skipulag,“ segir Guðjón sem hlær að hugmyndinni og gamla og nýja skólann. Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, sýndi nefnilega í sumar að gamli skólinn kann sitthvað fyrir sér sem og Lars Lagerbäck sem vinnur með gömlu gildin og er óskabarn þjóðarinnar í dag. „Það er alltaf verið að tala um gamla skólann og nýja skólann. Þið sérfræðingarnir út um allt talið fjálglega um að það sé nýr tími og gamall tími,“ segir Guðjón. „Sumir eiga að vera úreltir og allt það, en svo kemur gamall Svíi sem talar um gömlu gildin, vinnusemina og varnarleikinn og það smellpassar. Þá er hann hafinn upp til skýjanna.“ „Þó það voru blendnar tilfinningar að sjá Val vinna KR í bikarúrslitaleiknum þar sem sonur minn tapaði og mitt gamla félag KR tapaði þá var gaman að sjá hvernig Óli nýtti sér reynslu sína sem reyndur refur í boltanum og steig fast til jarðar til Valsliðið. Hann vann bikar sem hefur verið vöntun á á Hlíðarenda.“ „Ég kaupi ekki þennan gamla og nýja skóla því fótboltinn er alltaf eins og hann gerir ekkert nema það sem við hann verður gert,“ segir Guðjón.Guðjón kom Stoke upp um deild og vann framrúðubikarinn.vísir/pjeturEr ekki of þver Guðjón segir alveg augljóst að félög þori ekki að fá hann til starfa í dag og viðurkennir að það getur að einhverju leyti honum að kenna. Á endanum velja félögin menn sem eru þægilegri í umgengni. „Það liggur alveg ljóst fyrir. Það getur vel verið að ég sé of fastur í minni nálgun. Ég tel mig ekki vera þveran en ég hef faglega sýn,“ segir Guðjón sem hefur óbilandi trú á sjálum sér. „Það sem mönnum finnst erfitt að eiga við er að ég hef mikla reynslu og mikla þekkingu sem ég hef notað til góðs og nýtt mér vel. Það hafa verið hlutir sem hafa gengið illa og verið erfiðleikar en sem betur fer minna heldur en hitt.“ „Fólk vill bara eitthvað þægilegt og notalegt, en það er engin þægileg leið ef menn ætla að ná árangri. Það þarf bara blóð svita og tár. Ef þú ert ekki tilbúinn til þess að þá nærðu ekki svo glatt árangri,“ segir Guðjón.„Agi er upphaf árangurs“vísir/pjeturVinnur ekkert á auðmýkt Aðspurður hvort hann þurfi að sýna meiri auðmýkt í ljósi þess að hann fái ekki starf þessi misserin svarar Guðjón: „Þetta snýst ekkert um hvort ég þurfi að breytast. Hvernig ætlarðu að vinna fótboltaleiki? Er það á auðmýktinni eða á frammistöðu allra aðila sem þurfa að liðinu að koma. Það þurfa að vera faglegar forsendur til þess að vinna. „Mínar forsendur og það sem ég stend fyrir tikkar ekki inn hjá forráðamönnum félaganna hér í dag. Það þýðir ekkert fyrir mig að grenja yfir því enda dettur mér það ekki í hug. Menn verða bara að hafa þetta eins og þeir vilja. Það er ekkert við því að gera.“ „Ég veit það, að þær aðferðir duga. Svíinn hann sannaði það þegar hann kom hingað til Íslands. Ég brosti út í bæði þegar ég heyrði Lars tala um á fundi þjálfara hvaða gildum hann ætlaði að keyra á. Ég hef alltaf sagt að agi er upphaf árangurs, alveg sama hvert þú ferð eða hvað þú gerir. Agi er upphaf árangurs,“ segir Guðjón Þórðarson. Viðtalið má heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira