FIFA hafnar beiðni Barcelona Kristinn Páll Teitsson skrifar 23. september 2015 16:15 Arda Turan verður að láta æfingarnar duga áfram næstu mánuðina. Vísir/Getty
Samkvæmt spænskum miðlum hefur Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hafnað beiðni Barcelona um að fá að skrá Arda Turan í leikmannahóp sinn eftir að Rafinha meiddist á dögunum. Rafinha sem er brasilískur landsliðsmaður sleit krossband á dögunum og verður fyrir vikið ekki með það sem eftir lifir tímabilsins. Segja reglur spænsku úrvalsdeildarinnar svo að félög geti fengið að breyta skráningu meiðist leikmaður í lengri tíma en fimm mánuði. Barcelona er hinsvegar í félagsskiptabanni eftir að upp komst að félagið hefði fengið til liðs við sig knattspyrnumenn undir 18 ára aldri sem er bannað nema að það uppfylli ákveðin skilyrði. Þrátt fyrir það gekk félagið frá kaupunum á Turan og Aleix Vidal í sumar en getur ekki skráð þá í leikmannahóp liðsins fyrr en í janúar. Sótti Barcelona um að fá að beita þessari undantekningu til að skrá Turan sem er tyrkneskur landsliðsmaður en FIFA synjaði því á þeim grundvelli að félagið mætti ekki skrá nýja leikmenn fyrr en í janúarglugganum þegar félagsskiptabanni þeirra væri lokið.
Spænski boltinn Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Ísland - Króatía | Króatar þurfa kraftaverk Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti „Það rignir ekkert inn peningum“ Handbolti Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Fleiri fréttir HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Arsenal - Lille | Hákon í heimsókn hjá Englandsmeisturunum Atlético Madrid - Manchester United | Undir pressu í Madríd Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía | Króatar þurfa kraftaverk Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sjáðu íslensku eldflaugina frá DJ Sigga Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Fá marbletti og gefa marbletti: „Klárar í slagsmál“ „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Glódís og Þorsteinn sátu fyrir svörum Heitur HM draumur og mega ekki slaka á: „Getur allt farið til fjandans“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Sjá meira