Hjúkrunarfræðingur svarar María Ósk Gunnsteinsdóttir skrifar 22. júní 2015 16:44 Nú virðist sem svo að fjármálaráðherra sé farinn að stunda skæruhernað í fjölmiðlum landsins. Hann kemur fram sakleysið uppmálað en fer vísvitandi með rangar staðreyndir og gerir það án þess að blikna. Tilgangurinn er einfaldur, að láta hjúkrunarfræðinga líta illa út, að láta þá líta út sem ósanngjarnar frekjur sem ætlast til of mikils. Á meðan birtist heilbrigðisráðherra í fjölmiðlum og spilar sig sem góða gæjann, gamla sjómanninn sem talar táreygður um storminn sem þarf að standa af sér, að á eftir brælu komi betri tíð og að það þurfi að setja nýtt troll undir þegar gamla skemmist. Þetta er allt saman pólitísk afvegleiðing, leið til að svara spurningum án þess að svara nokkru, leið til að fá fólk til að horfa á eitthvað allt annað en aðalatriðið sem er einfaldlega það sem við blasir, hrun heilbrigðiskerfisins á Íslandi verði ekki brugðist við því ástandi sem nú er komið upp. Sniðugir þessir pólitíkusar. Bjarna Ben er tíðrætt um að hjúkrunarfræðingum hafi verið boðin 20% launahækkun en samninganefnd hjúkrunarfræðinga kannast ekki við það tilboð. Nýjasta tilboð ríkisins hljóðaði uppá 18,5% hækkun launa á fjögurra ára tímabili. Það gera 4,6% á ári. Þessar tölur þýða einfaldlega það að þegar að lágmarkslaun í landinu verða 300 þúsund þá verða byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga eftir 4 ára háskólanám 364 þúsund. Með milljónir í námslán. Hvar er sanngirnin í þessu? Af hverju segir Bjarni Ben ekki sannleikann fyrst hann ákvað að rjúfa trúnað? Því sannleikurinn er ljótur. Sjáið þið ekkert rangt við þetta?Með lægri laun en karlastéttir Hjúkrunarfræðingar eru með 14-25 % lægri grunnlaun en hefðbundnar karlastéttir hjá ríkinu (með svipað langt eða styttra nám). Eina sem getur útskýrt þennan launamun er sú staðreynd að hjúkrunarfræðingar eru stór kvennastétt, ein sú stærsta. Myndu þeir samþykkja þetta tilboð frá ríkinu þá væru hjúkrunarfræðingar ennþá með 14-25 % lægri laun en hefðbundnar karlastéttir hjá ríkinu eftir þessi 4 ár og því engu nær markmiðum sínum um að menntun okkar sé metin til jafns á við menntun annarra háskólamenntaðra og engin skref væru stigin í átt að því að útrýma kynbundnum launamun. Sjáið hvað leikur að tölum er villandi. Þess vegna þarf að útskýra hvað er á bakvið þær. Ár eftir ár er búið að lofa hjúkrunarfræðingum kjarabót í næsta samningi. Það er aldrei rétti tíminn. Einhvern veginn hafa þeir látið það yfir sig ganga enda held ég að það sé í eðli hjúkrunarfræðinga að setja þarfir annarra í forgang. Það útskýrir t.d. af hverju hjúkrunarfræðingar hafa verið tilbúnir til að hlaupa hraðar og hraðar seinustu ár samhliða gríðarlegum niðurskurði til að halda þjónustu við skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins í þeim gæðaflokki sem við öll viljum ganga að. En nú er fólk búið að fá nóg. Fólk vill fara að pendla erlendis þar sem það fær tvöföld laun. Jafnvel flytja alveg með fjölskylduna. Fólk er farið að mennta sig út úr faginu eða bara farið að vinna við eitthvað allt annað en hjúkrun sjúklinga. Er það ekki sorglegt?Mun aðeins versna Í verkfalli hjúkrunarfræðinga (sem náði ekki 3 vikum) þá var keyrt á fullri starfsemi á mörgum deildum. Öryggislistar frá velferðarráðuneytinu kölluðu jafnvel á betri mönnun en í boði er á LSH dags daglega vegna manneklu. Sýnir þetta ekki að spítalinn er kominn fram yfir bjargbrúnina, þegar ekki næst að manna uppí öryggismönnun á venjulegum dögum? Ástandið mun einungis versna. Fjöldi hjúkrunarfræðinga hafa sagt upp, 900 hjúkrunarfræðingar mega hætta vegna aldurs á næstu árum, 450 útskrifast í staðinn en meira að segja nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar sjá sér ekki fært að vinna á stærstu sjúkrastofnun landsins, LSH, og horfa því annað. Það hlýtur að vera hagur okkar allra að það sé öflugt heilbrigðiskerfi til staðar þegar þarf að nota það en slíkt næst ekki án þátttöku hjúkrunarfræðinga. Læknar halda ekki einir uppi þjónustu á sjúkrahúsum, þeir vinna í þverfaglegu samstarfi við hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara, næringarfræðinga, lífeindafræðinga, geislafræðinga, sjúkraliða og svo mætti lengi telja.Frábær samstaða Ef einn hlekk vantar í keðjuna, þá virkar hún ekki. Það þarf að bæta kaup og kjör hjúkrunarfræðinga og þar með gera starfið samkeppnishæft um mannaflann. Það þarf að útrýma launamuni kynjanna alveg. Er það ekki dálítið undarlegt að á sama tíma og ríkisstjórnin setur lög á eina stærstu kvennastétt landsins (starfsmenn sína) og bindur stéttina gerðadómi (í lögunum frá þeim kemur fram nákvæmlega hver launahækkunin skal vera og sú tala viðheldur þessum launamun) þá þykjast þeir vera jafnréttissinnar, stofna jafnréttissjóð og spila sig sem stærstu menn í he for she átakinu. Hér er annað dæmi um afvegleiðingu. Látið ekki plata ykkur, meira að segja fjölmiðlar erlendis eru farnir að taka eftir þessu. Markmið stjórnvalda er að útrýma kynbundnum launamun fyrir árið 2022. Það er eftir einungis sjö ár. Þeir eru samt ekki tilbúnir að stíga fyrstu skrefin í dag heldur á greinilega að gera þetta allt á þremur árum, árin 2019-2022. Er það ekki undarlegt? Af hverju byrja þeir ekki strax? Við hjúkrunarfræðinga vil ég segja: Frábær samstaða. Ég er ótrúlega stolt af því að tilheyra þessari starfstétt. Ekki láta brjóta niður þessa samstöðu með útúrsnúningi pólitíkusa í fjölmiðlum sem leika sér að tölum til að snúa áliti almennings gegn okkur til þess eins að bæta eigið fylgi. Berjist á móti, ekki lúffa fyrir svo skítlegri framkomu. Ekki samþykkja eitthvað sem ykkur er ekki boðlegt. Berjist fyrir ykkur og berjist fyrir heilbrigðiskerfið. Áfram hjúkrunarfræðingar! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Verkfall 2016 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun