Stormur um vestanvert landið Stefán Árni Pálsson skrifar 15. mars 2015 22:51 Á Vestfjörðum er snjóþekja á flestum leiðum. vísir/pjetur
Spáð er sunnanstormi um landið vestanvert í nótt og fram yfir hádegi á morgun en þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Búast má við bylgjóttum vindi og snörpum hviðum á norðanverðu Snæfellsnesi, 30-45 m/s. Eins á Vestfjörðum s.s. við Hnífsdal og í Arnardal á milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Eins verða nokkuð harðir hnútar undir Hafnarfjalli um tíma í fyrramálið. Víða er varað við vegaskemmdum þar sem slitlag hefur skemmst í hvassviðri. Í tilkynningunni frá Vegagerðinni kemur fram að vegfarendur séu beðnir að fara með gát. Á Vesturlandi er víða hálkublettir þó er ófært á Fróðárheiði og Bröttubrekku. Þæfingsfærð með stórhríð er í Svínadal. Snjóþekja er á Holtavörðuheiðinni. Á Vestfjörðum er snjóþekja á flestum leiðum. Ófært er um Þröskulda, Steingrímsfjarðarheiði, Kleifaheiði Hálfdán, Mikladal, Klettsháls og Hjallaháls. Þæfingsfærð er á Gemlufallsheiðinni. Nokkuð er um Snjókomu, snjóþekju og hálku Norðanlands. Hálka og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Þæfingsfærð með skafrenningi á Þverárfjalli. Varmahlíðarmegin við Vatnsskarð er krapafærð. Á Austurlandi er víða hálka og éljagangur. Snjóþekja og éljagangur er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og Biskupshálsi. Ófært er á Hófaskarði. Vegurinn um Hvalnesskriður / Þvottárskriður er lokaður vegna aurskriðu. Unnið er að opnun, ekki er vitað hvenær muni ná að opna. Greiðfært er með suðausturströndinni og er eitthvað um éljagang. Vegurinn niður að Dyrhólaey (vegnúmer 218) er ekki fær bílum og því lokaður.
Veður Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ Sjá meira