Vill sjá Simeone eða Ancelotti taka við af Pellegrini Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2015 08:00 Manuel Pellegrini tekur hér Yaya Toure af velli í gær. Vísir/Getty
Robbie Savage, knattspyrnuspekingur BBC, er viss um að Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City, verði rekinn eftir tímabilið en City-liðið datt út úr sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Manchester City er sex stigum á eftir toppliði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og töpuðu samanlagt 3-1 á móti Barcelona þar sem markvörðurinn Joe Hart hreinlega bjargaði liðinu frá miklu verri útreið í báðum leikjunum. „Ég held að það sé kominn tími á Pellegrini. Það er síðan önnur spurning hvort að Diego Simeone sé tilbúinn að fara frá Atletico Madrid eða hvort Carlo Ancelotti geti hugsað sér að fara frá Real Madrid? Það eru stjórar sem ég vildi sjá hjá Manchester City," sagði Robbie Savage á BBC í gærkvöldi. Manchester varð enskur meistari og vann enska deildarbikarinn á fyrsta ári Manuel Pellegrini með liðið en það stefnir allt í titlalaust ár í ár. „Ég tel að City þurfi að gera róttækar breytingar," sagði Savage og bætti við: „Vincent Kompany hefur verið besti varnarmaðurinn undanfarin þrjú ár en hann þarf traustan félaga í miðri vörninni,“ sagði Savage sem telur að belgíski miðvörðurinn sé farinn að finna fyrir þessu. „Kompany þarf að taka til hjá sér því hann hefur ekki verið að spila vel að undanförnu," sagði Savage. „Yaya Toure hefur líka verið tekinn af velli leik eftir leik og það er óvissa í kringum framtíð hans," sagði Savage sem eins og fleiri býst við stórri tiltekt hjá City í sumar.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Náði að plata Óskar Örn Sport Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Sjá meira