Stormur norðvestantil á landinu í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2015 17:49 Skafrenningur mun aukast til muna, sérstaklega á Snæfellsnesi, í Dölum, ofantil í Borgarfirði, á Vestfjörðum, Ströndum og vestantil á Norðurlandi. Vísir/Auðunn
Allar líkur eru á að það hvessi með kvöldinu, einkum á norðvestanverðu landinu. Búist er við að það verði kominn stormur, 15 til 22 metrar á sekúndu, og með éljum seint í kvöld. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að við þetta muni skafrenningur aukast til muna, sérstaklega á Snæfellsnesi, í Dölum, ofantil í Borgarfirði, á Vestfjörðum, Ströndum og vestantil á Norðurlandi. „Þá er reiknað með að nokkuð snjói staðbundið í hægum vindi suðaustanlands í kvöld og nótt frá Vík og austur fyrir Höfn.“Færð og aðstæður„Það er snjóþekja og skafrenningur bæði á Sandsskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum en á Suðurlandi er víðast hvar hálka en sumstaðar þæfingur eða jafnvel þungfært á fáeinum sveitavegum. Hálkublettir eru á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu, á Reykjanesbraut og Suðurnesjum. Hálka er á flestum vegum á Vesturlandi en sumstaðar snjóþekja. Þæfingsfærð er á Fellsströnd. Snjóþekja eða hálka er á vegum á Vestfjörðum og víða skafrenningur. Á Norðurlandi er víðast hvar nokkur hálka eða snjóþekja og sumstaðar él eða skafrenningur. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á Austurlandi og allvíða ofankoma eða skafrenningur. Þæfingsfærð er á Jökulsárhlíð og Hróarstunguvegi. Vetrarfærð er einnig á Suðausturlandi,“ segir í tilkynningunni.
Veður Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Fleiri fréttir Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Sjá meira