Sá markahæsti í liði mótherja Íslands Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. janúar 2014 11:30 Kiril Lazarov í eldlínunni í Danmörku. Vísir/AFP
Ljóst er að strákarnir okkar í karlalandsliði Íslands í handbolta þurfa að hafa góðar gætur á Kiril Lazarov í viðureign liðanna í milliriðli 1 á Evrópumótinu í Danmörku í dag. Örvhenta skyttan, sem er á launaskrá hjá stórliði Barcelona á Spáni, hefur skorað 31 mark á mótinu úr 62 skottilraunum sínum. Það svarar til 50 prósenta skotnýtingu en kappinn hefur líka tekið langflest skot allra á mótinu. Enginn á listanum yfir tuttugu markahæstu menn mótsins hefur lakari skotnýtingu en Makedóníumaðurinn skotfasti. Lazarov hefur eins marks forskot á Hvít-Rússann Siarhei Rutenka sem hefur skorað 30 mörk í 49 tilraunum.Guðjón Valur Sigurðsson er markahæsti leikmaður Íslands með 28 mörk í 32 skotum sem skilar okkar manni í þriðja sæti á listanum. Aron Pálmarsson er í 10. sæti með 20 mörk og Ásgeir Örn Hallgrímsson er í 13. sæti með 18 mörk. Listann í heild sinni má sjá hér. Leikur Íslands og Makedóníu hefst klukkan 15 og verður í beinni útvarps- og textalýsingu á Bylgjunni og hér á Vísi. Guðjón Guðmundsson og Henry Birgir Gunnarsson eru með puttann á púlsinum í Herning.
EM 2014 karla Handbolti Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram Sjá meira