Ingó Veðurguð skoraði í fyrsta sigri Selfyssinga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2013 21:21 Mynd/Daníel
Selfoss og Grindavík, liðin sem féllu úr Pepsi-deild karla síðasta haust, unnu bæði útisigra í leikjum sínum í 1. deild karla í kvöld en þau höfðu bæði tapað á heimavelli í fyrstu umferðinni. Hér fyrir ofan má sjá myndir Daníels Rúnarssonar frá leik Víkinga og Selfoss í kvöld. Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, skoraði fyrra mark Selfoss í 2-1 útisigri á Víkingum í Víkinni. Ingólfur Þórarinsson skoraði markið sitt á 27. mínútu en Magnús Ingi Einarsson bætti við öðru marki á 50. mínútu. Igor Taskovic minnkaði muninn í lokin en Magnús Ingi hafði þá fengið sitt annað gula spjald. Þetta voru fyrstu mörk Selfyssinga í sumar en liðið tapaði 0-1 á móti KA í 1. umferðinni. Jordan Lee Edridge skoraði eina markið þegar Grindvíkingar sóttu Hauka heim á Schenkervöllinn á Ásvöllum. Sigurmarkið hans Edridge kom strax á 34. mínútu leiksins. Öll þessi fjögur lið sem voru að spila í kvöld, Selfoss, Grindavík, Haukar og Víkingur, hafa nú þrjú stig. 2. umferðin klárast síðan með fjórum leikjum á morgun. Guðmundur Atli Steinþórsson tryggði HK 1-0 sigur á ÍR í eina leik kvöldsins í 2. deild karla en markið hans kom út vítaspyrnu strax á áttundu mínútu leiksins. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá vefsíðunni úrslit.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira