Biðin loks á enda Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. maí 2012 06:30 Hjalti Bergmann Eiðsson, einn fremsti boccia-spilari landsins um árabil, verður meðal keppenda um helgina. Mynd / Íþróttasamband fatlaðra
Bestu boccia-spilarar landsins verða á meðal þátttakenda á Norðurlandamótinu sem fer fram í Laugardalshöll um helgina. Mótið fer fram á tveggja ára fresti en íslensku keppendurnir komust ekki á mótið í Danmörku 2010 vegna öskufalls úr gosinu í Eyjafjallajökli. Biðin eftir Norðurlandamótinu hefur því verið löng hjá íslensku keppendunum. Alls verða 22 fremstu boccia-spilarar Íslands meðal keppenda en heildarfjöldi þátttakenda er 79. Auk Íslendingana verða 11 Danir, 16 Finnar, 3 Færeyingar, 15 Norðmenn og 12 Svíar sem etja kappi í Laugardalshöllinni. Aðeins bestu spilarar í hverjum fötlunarflokki þjóðanna sex fá þátttökurétt og komast færri að en vilja. Hafa skal í huga að boccia er vinsælasta íþróttagrein meðal fatlaðra á Norðurlöndunum ef miðað er við iðkendafjölda. Norðurlandamótið fór síðast fram hér á landi árið 2000 þegar keppt var í Reykjanesbæ. Besti árangur Íslendings á Norðurlandamóti náði Margrét Edda Stefánsdóttir árið 2002 þegar hún hlaut bronsverðlaun í rennuflokki. Mótið verður sett í Laugardalshöll klukkan 9:45 á laugardag og hefst keppni í kjölfarið. Á sunnudeginum hefst keppni klukkan 9:30 og lýkur klukkan 16. Verðlaunafhending fer fram um leið og keppni lýkur í hverjum flokki.
Innlendar Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Tarik framlengir við Víking Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Leikmaður ársins missir af landsleikjum Áföllin halda áfram að dynja á Russell Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Rahm segist vilja rifta við LIV Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Sjá meira