Messi sá fyrsti í 60 mörk á einu tímabili í næstum því 40 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2012 12:30 Lionel Messi fagnar í gær. Mynd/Nordic Photos/Getty
Lionel Messi skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Barcelona á Real Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og er þar með búinn að skora 60 mörk fyrir Barca á tímabilinu. Messi er fyrsti knattspyrnumaðurinn í næstum því 40 ár sem nær að brjóta 60 marka múrinn. Síðastur til að skora 60 mörk fyrir sitt lið á einu tímabili var Þjóðverjinn Gerd Müller sem afrekaði það með Bayern München tímabilið 1972-73. Müller skoraði reyndar 67 mörk það tímabil en Messi á enn eftir að minnsta kosti tíu leiki til að bæta það met. Lionel Messi hefur nú skorað 60 mörk í 50 leikjum með Börsungum á leiktíðinni, 38 mörk í 30 leikjum í deildinni, 14 mörk í 9 leikjum í Meistaradeildinni, 1 mark í 1 leik í Ofurbikar Evrópu, 2 mörk í 6 leikjum í spænska bikarnum, 3 mörk í 2 leikjum í spænska ofurbikarnum og 2 mörk í 2 leikjum í Heimsmeistarakeppni félagsliða. Lionel Messi hefur skorað 11 mörkum meira en Cristiano Ronaldo sem er marki á eftir honum í spænsku deildinni. Ronaldo er líklegur til að komast líka í 60 marka hópinn áður en tímabilið er á enda en í honum eru auk Messi og Müller; Ungverjinn Fernc Deak, Hollendingurinn Henk Groot og Englendingurinn Dixie Dean. Fernc Deak skoraði 66 mörk fyrir ungverska liðið Szentlorinc 1945-46, Henk Groot skoraði 64 mörk fyrir Ajax Amsterdam 1960-61 ogDixie Dean skoraði 63 mörk fyrir Everton 1927-28.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Breiðablik - Csíkszereda | Blikar stefna aftur á Evrópubikarinn Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Sjá meira