Messi með þrennu og vippaði sér í sögubækur Barcelona 20. mars 2012 16:01 Messi fagnar fyrra marki sínu í kvöld er hann jafnaði markamet Barcelona. Hann er nú búinn að bæta það.
Það var vel við hæfi að Lionel Messi skildi vera aðalmaðurinn í 5-3 sigri Barcelona á Granada í kvöld. Messi skoraði tvö söguleg mörk í leiknum. Þessi ótrúlegi 24 ára Argentínumaður var aðeins einu marki frá því að jafna markamet Cesar Rodriguez í kvöld og hann náði að jafna metið í fyrri hálfleik. Hann kom þá Barcelona í 2-0 en leikmenn Granada lögðu ekki árar í bát og jöfnuðu leikinn, 2-2. Þá þurfti Barcelona enn og aftur á töfrum Messi að halda og hann svaraði kallinu. Messi skoraði mark númer 233 fyrir Barcelona með því að lyfta boltanum smekklega yfir markvörð Granada. Ekki í fyrsta skipti sem Messi vippar boltanum yfir markvörð en hann er löngu búinn að gera það að listgrein. Klassískt mark hjá þessum mikla snillingi sem er þess utan búinn að skora 34 mörk í deildinni í vetur. Áður en yfir lauk bætti Tello síðan við fjórða markinu og Messi fullkomnaði þrennuna nokkrum mínútum fyrir leikslok. Skömmu síðar gaf Dani Alves sína aðra vítaspyrnu og var rekinn af velli. Barcelona er eftir sem áður fimm stigum á eftir toppliði Real Madrid í deildinni.
Spænski boltinn Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Sjá meira